Veitur

Veitur

Hitaveitur

Á veitudeild jarðvarma- og veitusviðs Verkís starfa verk- og tæknifræðingar, ásamt tækniteiknurum, sem hafa víðtæka þekkingu á hönnun veitukerfa.  Verkís hefur hannað flest hitaveitukerfi landsins, þ.m.t. dælustöðvar, stofnæðar, dreifikerfi, dreifistöðvar, miðlunargeyma og hústengingar. Sem dæmi um verkefni á þessu sviði er nær allt hitaveitukerfi Orkuveitu Reykjavíkur, Hitaveita Suðurnesja, Hitaveitan á Akureyri og Hitaveita Akraness og Borgafjarðar.

Verkís hefur einnig víðtæka reynslu af hönnun bæði í bæjum og í tengslum við jarðvarmavirkjanir á háhitasvæðum.

Í veitudeild eru notuð öflug tölvuforrit til að greina og hanna flókin veitukerfi og afkastamikil pípukerfi, bæði fyrir stöðugt og kvikult streymi. Ennfremur er unnt að reikna viðbrögð veitukerfa við snöggum álagsbreytingum svo sem vegna notkunar slökkvivatns í stórbruna á tilteknum stað o.s.frv.

Ýmis verkefni af svipuðum toga en minni í sniðum eru lagnakerfi í byggingum, t.d. vatnsúðakerfi.

Starfsmenn veitudeildar hafa komið að erlendum verkefnum og má þar t.d. nefna hitaveitu í Galanta í Slóvakíu, en þar sáu starfsmenn veitudeildar um hönnun, útboð, framkvæmdaeftirlit og ræsingu hitaveitunnar. Einnig hafa starfsmenn deildarinnar komið að hitaveituverkefnum í Kína, Tyrklandi og víðar.

Deildarstjóri er Dr. Oddur B. Björnsson vélaverkfræðingur.

 Fráveitur

Verkís býður upp á fjölbreytta þjónustu er varðar fráveitukerfi og hreins­istöðvar, bæði hönnun nýrra kerfa, og greiningar og athuganir á eldri kerfum. Verkís hefur á að skipa hönnuðum með mikla reynslu af hönnun dælu- og hreinsistöðva fyrir fráveitu, rennslismælingum í fráveitukerfum, skýrslu­gerð, auk sýna­töku í skólphreinsistöðvum. 

 Deildarstjóri er Guðrún Dröfn Gunnarsdóttir.

 

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica