Um okkur
Um okkur

VERKÍS er öflugt og framsækið ráðgjafarfyrirtæki sem býður fyrsta flokks þjónustu á öllum sviðum verkfræði. Verkís rekur uppruna sinn til ársins 1932 og er því elsta verkfræðistofa landsins. Áratuga reynsla og þekking skilar sér í traustri og faglegri ráðgjöf og fjölbreyttum lausnum. Hjá Verkís starfa yfir 300 starfsmenn að fjölbreyttum verkefnum á Íslandi og erlendis. Verkís leggur áherslu á að veita vandaða og faglega þjónustu sem er samkeppnisfær við það sem best þekkist í heiminum.
Verkís starfar samkvæmt vottuðu gæðakerfi auk þess að fylgja metnaðarfullri stefnu í öryggis- og umhverfismálum.
Framkvæmdastjóri er Sveinn Ingi Ólafsson.
Sérþekking
Verkís býr yfir sérfræðiþekkingu sem spannar allar þarfir framkvæmdaaðila frá fyrstu hugmynd til loka fjárfestingarverkefnis. Að auki býður Verkís rekstraraðilum þjónustu við margháttuð rekstrar- og viðhaldsverkefni. Meðal þjónustuframboðs er:
- Undirbúningur framkvæmda og áætlanagerð
- Hönnun hvers kyns mannvirkja, svo sem orkuvera, samgöngumannvirkja, íbúðar- atvinnu- og þjónustuhúsnæðis.
- Hönnun allra sérkerfa sem þarf í mannvirki
- Verkefnastjórnun, bæði við hönnun og á framkvæmdastað
- Framkvæmdaeftirlit
- Öryggis-, umhverfis- og heilbrigðisráðgjöf
Sérstaða
Styrkur Verkís felst meðal annars í því að á einum og sama stað geta viðskiptavinir okkar sótt alla hefðbundna verkfræðiráðgjöf, auk þeirrar stoðþjónustu sem nú er orðinn órjúfanlegur hluti af undirbúningi og rekstri flókinna verkefna.
Starfsemin og öll okkar þjónusta er unnin eftir vottuðu gæðakerfi samkvæmt ISO 9001 staðlinum. Auk þess fylgir Verkís metnaðarfullri stefnu í öryggis-, heilbrigðis- og umhverfismálum og eru umhverfis- og öryggisstjórnunarkerfi fyrirtækisins í vottunarferli samkvæmt ISO 14001 og OHSAS 18001 stöðlunum.
Gildi
Verkís kappkostar að láta gott af sér leiða fyrir viðskiptavini, starfsmenn sína, samstarfsaðila, þjóðfélagið og umhverfið.
Gildin okkar eru:
- Virðing fyrir fólki
- Traust og heiðarleiki
- Þekking og fagmennska
- Þjóðfélagsleg ábyrgð
- Virðing fyrir umhverfinu
Kennitala Verkís er 611276-0289
![]()
