Stefna Verkís
Hlutverk Verkís
Verkís er öflugt, leiðandi ráðgjafar- og þekkingarfyrirtæki á meginsviðum verkfræði og tengdra greina með áherslu á orkumál. Hlutverk þess er að veita vandaða og faglega ráðgjöf.
Framtíðarsýn
Á Íslandi ætlar Verkís að vera í fremstu röð í ráðgjöf í verkfræði og tengdum greinum og ná sömuleiðis markverðri fótfestu erlendis.
Gildi
- Virðing fyrir fólki
- Traust og heiðarleiki
- Þekking og fagmennska
- Þjóðfélagsleg ábyrgð
- Virðing fyrir umhverfinu
Verkís mun kappkosta að láta gott af sér leiða fyrir viðskiptavini, starfsmenn sína, samstarfsaðila, þjóðfélagið og umhverfið.
Stefna
Verkís stefnir að því að ná framúrskarandi árangri á öllum sviðum starfseminnar með vel skipulögðu fyrirtæki sem styðst við heilsteypta og skýra stefnu og festu í öllu starfi sínu. Í stefnu er ma. fjallað um:
- Þjónustu
- Viðskiptavini
- Starfsmenn
- Samstarfsaðila og birgja
- Markaðsstöðu og vöxt
- Skipulag og ferla
- Forystu og ábyrgð
- Umhverfið
Stefnuskjöl
- Starfsmannastefna
- Jafnréttisstefna
- Gæðastefna
- Umhverfisstefna
- Samgöngustefna
- Öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfisstefna
Markmið
Verkís setur sér markmið í starfi sínu. Þau eru unnin af stjórnendum og starfsmönnum, samþykkt í framkvæmdastjórn og staðfest af stjórn. Árangur er mældur og rýndur og eftirfylgni er með því að sett markmið náist.
