Öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfisstefna
Verkís einsetur sér að verða leiðandi í öryggis- og heilbrigðismálum á vinnustað, hvort sem er í starfsstöðvum fyrirtækisins eða á verkstað og stuðla þannig að auknu öryggi í þjóðfélaginu. Fyrirtækið leggur mikla áherslu á öryggi-, heilbrigði og vinnuumhverfi í starfsemi sinni til að allir starfsmenn hafi heilsusamleg og ánægjuleg vinnuskilyrði.
Verkís uppfyllir gildandi lög og reglur um öryggi-, heilbrigði og vinnuumhverfi og stefnir að öryggisstjórnun í samræmi við OHSAS 18001 til að tryggja stöðugar umbætur.
Við mótun mannvirkis, hönnun og undirbúning framkvæmda miðar hönnuður vinnu sína við að mannvirkið verði sem öruggast í byggingu og rekstri.
Starfsmönnum er lagður til allur nauðsynlegur öryggisbúnaður og lögð er rík áhersla á að starfsmenn Verkís fari eftir öryggisreglum fyrirtækisins í vinnu sinni auk þess að fara eftir öryggisreglum á viðkomandi verkstað. Sé aðbúnaði varðandi öryggi og heilbrigði á verkstað ábótavant, ber starfsmönnum Verkís að hætta vinnu eða stöðva hana og benda á úrbætur.
Verkís aflar sífellt þekkingar um öryggi vinnustaða í góðu samstarfi við aðra aðila er vinna að öryggis-, heilbrigðis- og vinnuumhverfismálum og með virkri þátttöku í faglegu starfi og fræðslu.
