Samgöngustefna

Samgöngustefna

Verkís ætlar að vinna að því að draga úr neikvæðum áhrifum samgangna á umhverfið og stuðla að lífvænlegra umhverfi, heilbrigðari lífsháttum, minni mengun og um leið draga úr álagi á vegakerfið.

Starfsmenn eru hvattir til að tileinka sér sjálfbæra ferðamáta svo sem að ganga, hjóla, nýta almenningssamgöngur og stuðla að bættri nýtingu einkabílsins.

Við úrlausn verkefna stefnir Verkís að því að taka tillit til gangandi, hjólandi, akandi vegfarenda svo og almenningssamgangna á framkvæmdar- og rekstrartíma mannvirkis og lágmarka orkunotkun vegna samgangna.

Á starfsstöðum sínum mun Verkís hafa til staðar reiðhjól og bíla fyrir starfsmenn í styttri ferðir. Við kaup á farartækjum Verkís eru hagsmunir umhverfisins hafðir í huga.

Verkís vinnur að því að efla vitund starfsmanna um vistvæna ferðamáta og hvetur þá til að taka tillit til umhverfisins og aðstæðna hverju sinni.



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica