Umhverfisstefna

Umhverfisstefna

Verkís einsetur sér að að taka tillit til umhverfisins í allri starfsemi sinni og stuðla að sjálfbærri þróun í samfélaginu. Fyrirtækið er fylgjandi náttúruvernd og skynsamlegri nýtingu náttúruauðlinda og mun beita þekkingu sinni og fagmennsku með virðingu fyrir umhverfinu að leiðarljósi. 

Verkís uppfyllir gildandi lög og reglugerðir um umhverfismál og stefnir að umhverfisstjórnun í samræmi við kröfur staðalsins ISO 14001 til að tryggja stöðugar umbætur og bæta virkni í umhverfismálum. Fyrirtækið vinnur að því að efla umhverfisvitund starfsmanna.

Verkís ætlar sér að vera leiðandi á sviði vistvænnar hönnunar. Við úrlausn verkefna er stefnt að því að draga úr umhverfisáhrifum á framkvæmda- og rekstrartíma. Við hönnun og framkvæmdir beinir Verkís viðskiptavini sínum að því að nýta auðlindir skynsamlega.

Í rekstri Verkís er leitast við að fara sparlega með auðlindir og taka tillit til umhverfissjónarmiða við kaup á aðföngum.  Fyrirtækið leggur áherslu á að endurnýta og endurvinna og að farga úrgangi með sem minnstum umhverfisáhrifum. Þá er unnið að því að draga úr orkunotkun vegna ferða starfsmanna.



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica