Engjaskóli í Grafarvogi
VERKSVIÐ VERKÍS
- Hönnun burðarvirkja
- Hönnun hreinlætis- og hitalagna
- Hönnun loftræsikerfa- og stýringa
- Hönnun brunavarna
- Hönnun vatnsúðakerfis
LÝSING
Húsið er um 5.000 m2 að flatarmáli. Eftir húsinu endilöngu er "gatan", sem skilur að kennsluálmu, sem er á tveimur hæðum og sérgreinahluta, samkomusal o.fl. sem er á 1. hæð. Tæknirými eru í kjallara. Húsið er steinsteypt með steyptum loftplötum, nema þak yfir göngugötu, sem er léttbyggt timburþak. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með báruklæðningu. Opin samkeppni var um hönnun skólans og tóku um 50 aðilar þátt í henni. Verkfræðistofan var í hönnunarhópi með arkitektastofunni Úti og inni og fékk tillaga hópsins 1. verðlaun. Verkís sá um hönnun burðarvirkja, hreinlætis- og hitalagna, loftræsikerfa og stýringa, vatnsúðakerfis og brunatæknilega hönnun.
ALMENNT UM VERKIÐ
Bygging hússins hófst 1996 og var það tekið í notkun haustið 1997.
Verktaki var Ístak hf., en umsjón og eftirlit var í höndum byggingadeildar borgarverkfræðings.
Kostnaður
Kostnaður var vel innan þeirra marka sem miðað var við af verkkaupa.









