Sundlaug - Hofsósi
Verksvið Verkís
-
Hönnun burðarvirkis
Tækniupplýsingar
- Hús: 378 m²
-
Laugar:
Útilaug 25x10.5m
rúmtak 351m³
afköst kerfis 88m³/klst.Vaðlaug 7m²
rúmtak 2.3m³
afköst kerfis 11m³/klst.Ólgupottur 11.3m²
rúmtak 9m³
afköst kerfis 27m³/klst. -
Aðrir hönnuðir:
VA Arkitektar
- Sigríður Sigþórsdóttir
- Hönnun fráveitu- hreinlætis- og hitalagna
- Hönnun loftræsilagna
- Hönnun sundlaugakerfa
- Hönnun raflagna
LÝSING
Byggingin stendur í brún sjávarbakkans með útsýni til hafs. Burðarvirki eru steinsteypt og að miklu leiti með sjónsteypu. Útveggir á langhliðum eru úr glereiningum. Á þakinu er gras og tengist það landinu umhverfis.
Sundlaugarsvæðið samanstendur af 25m útilaug og sambyggðum ólgupotti og vaðlaug. Í þeim enda laugarinnar sem snýr að Drangey er laugin án sýnilegs kants þannig að vatnsflöturinn í lauginni og hafflöturinn renna í saman.
Laugarkerfin eru hefðbundin og klór notaður til hreinsunar.
ALMENNT UM VERKIÐ
Sundlaugin á Hofsósi var reist á árunum 2008 til 2009 að frumkvæði Lilju Pálmadóttur og Steinunnar Jónsdóttur og er að stórum hluta gjöf frá þeim. Laugin er í eigu Sveitarfélagsins Skagafjarðar.




























