Leikskólar í Reykjavík
VERKSVIÐ VERKÍS
Öll verkfræðiþjónusta. Tvívegis ráðgjafi arkitekta í samkeppnum um hönnun leikskóla. Með Arkitektastofu Finns og Hilmars 1989 og með Ingimundi Sveinssyni 1995.
LÝSING
-
Sólborg-Leikskóli, Vesturhlíð 2
Húsið er staðsteypt á einni hæð og sökklar steyptir. Loftplata er steypt nema yfir sal er þakið borið uppi með límtrésbitum. Húsið er einangrað að utan og klætt með lituðum plötum og þakið er hefðbundið með bárujárni. Framkvæmdir við viðbyggingu fóru fram á árinu 1995. Sami inngangur er fyrir viðbyggingu og hús. Sett voru upp öflugri tæki í eldhús til eldamennsku. Í þakrými húss er loftræstikerfi og geymsluloft. Innveggir í húsi og viðbyggingu eru úr timburgrind klæddir spónaplötum og málaðir. Loft í leikstofum og í sal eru klædd með hljóðísogsplötum en á gólfum er línóleum dúkur og flísar í votrýmum.
Frágangsár: 1998
Verkfræðiþjónusta: Burðarþol og allar lagnir
-
Laufásborg-Leikskóli, Laufásvegi 53-55
Húsin að Laufásvegi 53 og 55 voru byggð árið 1922 í Stekkjarkotstúni. Árið 1901 voru bæði húsin skráð við Bergstaðarstræti 58. Það var síðan árið 1924 að götuskráningunni var breytt í það sem nú er. Endurbygging hófst árið 1995og var byrjað á endurnýjun frárennslislagna í kjallara og lóð. Í samráði við Árbæjarsafn var gert nýtt skipulag að leikskólanum. Allar snyrtingar hafa verið fluttar til og endurnýjaðar, eldhúsi var breytt og tækjavætt í samræmi við nútímann og matarlyfta var endurnýjuð. Á árinu 1998 var lokið við endurbyggingu hússins að innanverðu og að mestu leyti endurgerð lóðar.
Frágangsár: 1998
Verkfræðiþjónusta: Burðarþol
-
Lyngheimar-Leikskóli, Mururima 2
Leikskólinn er byggður á verðlaunatillögu í lokaðri samkeppni sem efnt var til af Reykjavíkurborg árið 1995. Húsið er staðsteypt og einangrað að utan, klætt báruáli og timburklæðningu. Gluggar eru úr timbri, klæddir með áli. Þakið ver viðsnúið með þakpappa á steyptri plötu. Ofan á pappann er einangrað með rakaþolinni einangrun og hún fergð með möl. Við hönnun leiksólans var helsta markmiðið að ná fram hagkvæmni í byggingu, viðhaldi og rekstri leikskólans. Reynt var að ná fram góðu fyrirkomulagi og samspili fyrir þá starfsemi sem fram mun fara. Leitað var nýrra leiða við nýtingu á útiaðstöðu með tjaldi sem hlífir fyrir úrkomu og vindi.
Frágangsár: 1998
Verkfræðiþjónusta: Burðarþol
-
Hulduheimar-Leikskóli, Vættaborgum 11
Húsið er staðsteypt, einlyft á steyptum sökkli, einangrað að utan og klætt með máluðu bárujárni og timburklæðningu. Gluggar eru álklæddir timburgluggar. Þakið er viðsnúið og þakpappi á steyptri plötu. Ofan á pappann er einangrað með rakaþolinni einangrun og er hún fergð með möl. Við hönnun leiksólans var helsta markmiðið að ná fram hagkvæmni í byggingu, viðhaldi og rekstri leikskólans. Reynt var að ná fram góðu fyrirkomulagi og samspili fyrir þá starfsemi sem fram mun fara. Leitað var nýrra leiða við nýtingu á útaðstöðu með tjaldi sem hlífir fyrir úrkomu og vindi.
Frágangsár: 1997
Verkfræðiþjónusta: Burðarþol og lagnir
ALMENNT UM VERKIÐ
Byggðir hafa verið níu leikskólar, hver fyrir 80-100 börn. Sjö leikskólar voru byggðir skv. teikningu Arkitektastofu Finns og Hilmars og tveir skv. teikningu Ingimundar Sveinssonar.
