Byggingar
Lágafellsskóli – Mosfellsbæ
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Hönnun burðarvirkia
-
Hönnun lagna
-
Hönnun loftræsinginar
-
Hönnun brunavarna
LÝSING
Lágafellsskóli er grunnskóli í Mosfellsbæ um 7.000 m2 að stærð.
Skólinn verður byggður í 2-3 áföngum og var fyrsti áfanginn tekinn í notkun haustið 2001. Stærð fyrsta áfangi skólans, er um 4.700 m2. Skólinn er með göngugötu sem liggur eftir miðju húsinu. Norðan við götuna er húsið á tveimur hæðum og þar eru venjulegar kennslustofur og skólastjórn. Sunnan við götuna eru sérkennslustofur, eldhús og félagsaðstaða og er þessi hluti hússins á einni hæð. Húsið er steinsteypt með holplötur í loftum. Útveggir eru einangraðir og klæddir að utan með ál- og timburklæðningu.
Almennt um verkið
Arkitektar: Úti og Inni Arkitektastofa










