Byggingar
  • Verkis-8632
  • Verkis-8633
  • Verkis-8634
  • Verkis-8635
  • Verkis-8636
  • Verkis-8637

HLJÓÐTÆKNI fyrir Heilbrigðisþjónustu

MIKILVÆGI HLJÓÐVISTAR Í HEILBRIGÐISÞJÓNUSTU

Sérhæfð verkfæri

  • Norsonic
    Mælitæki og hugbúnaður til mælinga á hávaða.
  • CATT-Acoustic
    Hugbúnaður til að herma hljóðvist og hljómburð
  • Sound Plan
    Hugbúnaður til að reikna umhverfishávaða
  • WinMLS, NoiseLab og Matlab
    Hugbúnaður til greining-ar á hávaða og hljómburði

Skilningur á mikilvægi hljóðvistar í fyrirtækjum í heilbrigðis-þjónustu hefur aukist mikið á undanförnum árum. 

Hljóðvist hefur lengi verið vanrækt við hönnun bygginga fyrir heil-brigðisstarfsemi en mikilvægi hljóðvistarinnar er hins vegar óumdeilt.  Það á t.d. við í sjúkrahúsum þar sem vellíðan sjúklinga og vinnuaðstaða starfsfólks er mjög háð góðri hljóðvist og getur þegar best lætur minnkað þreytu og líkur á mistökum starfsfólks.  Þá er mikilvægi góðrar hljóðvistar ekki minna í  öldrunar-stofnunum þar sem vistmenn eru oft farnir að tapa heyrn og hæfileg dempun umhverfishávaða og góður talgreinanleiki eru lykilatriði varðandi lífsgæði vistmanna jafnt sem vinnuaðstöðu starfsmanna.

VERKSVIÐ VERKÍS

VERKÍS leggur áherslu á mikilvægi hljóðvistar í öllum verkefnum fyrir heilbrigðisfyrirtæki hvort sem um er að ræða hluta af umfangsmeira hönnunarverkefni eða úrbætur í ákveðnum rýmum sem þegar eru í rekstri.  Við fylgjumst stöðugt með framþróun á sviði hljóðtækni og beitum fyrsta flokks þekkingu og verkfærum til ráðgjafar m.a. varðandi:

  • Hávaðamælingar og hermun hávaða
  • Hermun talgreinanleika, ómtíma o.fl
  • Hljóðeinangrun
  • Hljómburð
  • Hljóðkerfi

HERMUN HLJÓMBURÐAR OG HLJÓÐVISTAR

Flest rými, þar sem hanna á hljóðvist sérstaklega, eru sett upp í reiknilíkan.  Gildir þá einu hvort rýmið sem um er að ræða verður notað sem tónleikasalur, matsalur, fjölnota samkomusalur, aðgerðarými á sjúkrahúsi eða kennslustofa.  Með reiknilíkani er hægt að herma hljóðvist og hljómburð líkt og um raunverulega mælingu væri að ræða.  Með hermilíkaninu má líka prófa sig áfram með efnisval á gólf, veggi og loft, stilla upp innréttingum og prófa sig áfram að ásættanlegri lausn á fljótvirkan og ódýran hátt.

 Dæmi um verkefni.

  • Hönnun hljóðvistar í Sjúkrahúsinu Ásbrú
  • Ráðgjöf með hávaða og titring frá segulómtæki
  •  Hljóðvist í ýmsum rýmum fyrir Landspítala Háskólasjúkrahús

  

SÉRFRÆÐINGAR VERKÍS Á SVIÐI HLJÓÐVISTAR

Steindór Guðmundsson, Ph.D. Hljóðverkfræði

Halldór K. Júlíusson, M.Sc. Hljóverkfræði 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica