Byggingar
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun
  • Litlahraun

Fangelsið að Litla Hrauni

Verksvið Verkís

  • Hönnun burðarvirkja
  • Hönnun raflagna
  • Hönnun lagna og loftræsingar
  • Hönnun ýmissa öryggiskerfa
  • Hönnun brunavarna
  • Eftirlit með hluta framkvæmda

 

LÝSING

Ný fangelsisbygging er um 1.450 m2 að stærð, með 55 vist-herbergjum. Þar er mötuneyti með eldhúsi og vaktherbergi fyrir miðju húsi á öllum hæðum. Vistherbergin eru öll loftræst og með baðherbergi. Í þeim er ýmiss sérútbúnaður, stálhurðum með rafdrifnum læsingum, öflugu öryggisgleri í gluggum þannig að unnt var að sleppa rimlum fyrir gluggum. Margvísleg öryggiskerfi eru í húsinu s.s.

  • Neyðarkallkerfi
  • Hurðastýringakerfi
  • Hljóðkerfi og loftnetskerfi
  • Símkerfi
  • Myndavélakerfi
  • Brunaviðvörunarkerfi

Heildarkostnaður var um 250 Mkr.

Íþrótta- og vinnuskálinn er tvískiptur með miðjukjarna fyrir búningsherbergi og aðstöðu fyrir starfsmenn á efri hæð. Hann er 550 m2 og var heildarkostnaður við skálann um 50 Mkr.

Breytingar og endurnýjun eldri bygginga fólst einkum í gagngerum breytingum á elsta húsinu, sem byggt var 1928. Þar var komið fyrir stoðdeildum fangelsisins, ss. heimsóknaraðstöðu, læknastofum, bókasafni og aðstöðu fyrir öryggissveit.  Endurnýjun á aðstöðu starfsmanna: Byggt var nýtt skrifstofuhús, einnar hæðar timburhús. Eldra skrifstofuhúsi var breytt í sölumóttöku fyrir framleiðsluvörur Litla Hrauns og aðstöðu til skólahalds fyrir fanga. 

Skipulag fangelsislóðar og öryggisgirðing: 1997 skilaði Verkís skýrslu, “Fangelsið að Litla Hrauni, uppbygging 1998, greinargerð” sem fjallaði um fangelsissvæðið m.t.t. öryggismála. Gerð var ný tvöföld 4,5 m há öryggisgirðing umhverfis fangelsislóðina með sérútbúnu aðalhliði. Þá voru settar upp eftirlitsmyndavélar á möstrum, sem vakta svæðið.

Á svæðinu er eitt brunaviðvörunarkerfi fyrir allar byggingar og með fjarvísunarstöðvum í hverju vaktherbergi.

Sett var upp neyðarkallkerfi fyrir Litla Hraun til aðstoðar vaktmönnum. Stjórnstöð sér hvaðan neyðarkall vaktmanns berst og sendir aðstoð.  Myndavélar á svæðinu mynda eitt kerfi og fylgst er með því frá fleiri en einu

 

ALMENNT UM VERKIÐ

Að lokinni arkitektasamkeppni og samkeppni um verkfræðiráðgjöf var í ársbyrjun 1994 hafist handa við hönnun eftirtalinna framkvæmda:

  • Ný fangelsisbygging
  • Íþrótta- og vinnuskáli
  • Breytingar og endurnýjun eldri bygginga
  • Endurnýjun á aðstöðu starfsmanna
  • Skipulag fangelsislóðar og öryggismál

Arkitektar voru Arkitektastofa Finns og Hilmars en Verkís annaðist alla verkfræðihönnun við verkefnið. Fangelsi eru um margt sérstakar stofnanir og krefjast sértækra lausna í ýmsum tæknimálum. Farið var í kynnisferðir til Noregs og Svíþjóðar og 5 fangelsisstofnanir skoðaðar. Margvíslegum upplýsingum var safnað í þessum ferðum og reyndar síðar á hönnunartímanum. Byggingar þurfa að vera aðlaðandi en um leið þarf allur frágangur að vera sterkbyggður og þola misjafna meðhöndlun.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica