Austurstúka í Laugardal – Reykjavík
VERKSVIÐ VERKÍS
- Hönnun burðarvirkja
- Hönnun raflagna
- Hönnun fráveitulagna
LÝSING
Stúkan er í sveig að norð-austanverðu meðfram aðalvelli í Laugardal. Stúkan er grunduð á rekstaurum. Staurarnir eru 9-12m langir, alls ríflega 100 stk. ofan á staurana og að þeim er steypt plata fyrir burðarveggi og bita undir þrepaeiningar. Vængveggir, aðal-burðarbitar, þrepaeiningar, bakveggur og rekstaurar er allt úr forsteyptum einingum. Inngangur er í stúkuna um staðsteypta stiga við vængveggi, en staðsteypt þrep á milli burðarbita og ganga niður á milli sæta. Sveigjan er tekin upp í staðsteyptu þrepunum. Þrepaeiningar eru forsteyptar 12,3-12,4m langar og setjast á burðarbita og vængveggi, alls um 150 stk. Sætin eru fest á forsteyptu þrepaeiningarnar.
Þakvirkið er borið uppi af þrívíðum stálgrindarbitum á vængveggjum og stálsúlum þar sem gengið er inn í stúkuna. Á milli grindarbitanna eru þverbitar sem þakklæðningin er fest á. Þakinu þar sem grindarbitarnir ganga uppúr er lokað með plexigleri
- Kostnaður: Kostnaðarliður Kostnaður [kr.]
Burðarvirki, jarðvinna og langnir 80.000.000
Þakvirki, plexigler og sæti 49.000.000
Annar kostnaður (1) 18.000.000
Kostnaður alls 147.000.000
Kostnaður pr. m2 75.000
Kostnaður pr. sæti 42.000
Athugasemdir vegna kostnaðar (1)Annar kostnaður er: Hönnun, umsjón og eftirlit. Hann er áætlaður. Kostnaður er miðaður við verðlag í nóvember 1996.
- Fjöldi A1-teikninga og vinnustundir:
Teikningar Vinnustundir
Burðarvirki og jarðvinna 34 1095
HHL-lagnir 4 85
Raflagnir 2 70
Verkið alls 40 1250
ALMENNT UM VERKIÐ
Áhorfendastúkan er norð-austan aðalvallar í Laugardal og tekur um 3500 manns í sæti. Lengd hennar er 140m og breidd um 14m.
Stúkan er gerð úr forsteyptum einingum, staðsteyptum tröppum og veggjum. Stúkan er grunduð á rekstaurum.
Þakivirkið er borið uppi af þrívíðum stálgrindarbitum, sem ganga upp úr þakinu þar sem gengið er inn í stúkuna. Á milli þeirra eru þverbitar sem þakklæðning er fest á. Á grindarbitana er fest plexigler. Sætin eru fest á þrepaeiningarnar.
- Samstarfsaðilar Verkís voru:
Arkitektar : Teiknistofan sf. Ármúla 6
Umsjón og eftirlit : Tækniþjónusta Magnúsar Bjarnasonar











