SUNDLAUGAR OG HEILSURÆKT Í LAUGARDAL
VERKSVIÐ VERKÍS
- Hönnun burðarvirkja
- Hönnun lagna, þar með talið sundlaugarkerfi
LÝSING
50 m keppnislaug og heilsuræktarstöð í Laugardal. Hér er um að ræða samstarfsverkefni Reykjavíkurborgar og World Class. Verklok heilsumiðstöðvarinnar voru snemma árs 2004, og sundlaugarhlutans um hálfu ári síðar.
Nýbyggingar mynda hálfhring vestan og sunnan við laugasvæði og tengjast núverandi búningsaðstöðu með lágri einnar hæðar steyptri byggingu með flötu þaki. Eldri búningsklefar voru nýttir áfram fyrir sundlaugina.
Byggingar eru steinsteyptar, með timbur- og glerveggjum og léttbyggðum þökum.
Sundlaugarhúsið er samtals 6200 m2. Laugin er fullkomin “olympisk” keppnislaug 50 m á lengd og 25 m breið. Í hluta laugarinnar er lyftanlegur botn.
Heilsuræktarstöðin er um 7400 m2. Búningsaðstaða er í kjallara, en á efri hæð eru tækja-og þreksalir, veitingaaðstaða ofl.
ALMENNT UM VERKIÐ
Arkitektar:
Konsept ehf, í samstarfi við Úti og Inni.
Aðrir hönnuðir:
Raflagnir - RTS Verkfræðistofa
Loftræsing -Almenna Verkfræðistofan hf



















