Byggingar
  • 1819/200
  • 1819/200
  • 1819/200
  • _MG_0308
  • _MG_0315

Íþróttahús Ásvöllum

 

 

VERKSVIÐ VERKÍS

  • Öll verkfræðihönnun

 LÝSING

Íþróttamiðstöðin er í þremur meginhlutum og skiptist í íþróttasal ásamt forsal, búningsklefa og rými tengdu rekstri hússins og félagsmiðstöð. Í byggingarlýsingu segir að forsalurinn sé hugsaður sem bæjargata og að frá henni liggi leiðir um húsið. Götunni tengist innigarður sem afmarkast af félagsmiðstöð, veitingasal, karatesal og búningsklefum. Forsalnum tengist einnig aðstaða starfsmanna og dagleg afgreiðsla og sala léttra veitinga ásamt miðasölu.

Íþróttasalurinn er 45x46 metrar og rúmar þær íþróttagreinar sem helst eru stundaðar innanhúss. Gert er ráð fyrir um 2.000 áhorfendum á útdregnum áhorfendapöllum en þegar pallarnir eru í geymslustöðu nýtist gólfplássið til íþróttaiðkana og má þá skipta salnum með tjöldum í 34 hluta allt eftir notkun. Búningsherbergi eru tólf, tíu eru við hlið íþróttasalar en tvö við karatesal í suðurenda hússins og eru þau einnig hugsuð fyrir notendur gervigrasvallar.

Í félagsmiðstöðinni eru skrifstofur félagsins ásamt starfsaðstöðu og geymslum fyrir hverja deild. Þar er einnig fundarherbergi og veislusalur fyrir um 120 manns ásamt framreiðslueldhúsi. Við hlið veitingasalar er karatesalur og með fellanlegum vegg á milli þeirra verður hægt að slá þeim saman í 250 manna veitingasal.

Húsið er grundað á malarfyllingu sem fyllt var yfir helluhraun.

Veggir og plötur eru úr steinsteypu. Íþróttasalur og samkomusalur eru klæddir og einangraðir að utanverðu, en búnings- og þjónustuálmur eru einangraðar að innanverðu.

Þök eru klædd PVC-dúk. Lægri þökin eru uppstóluð timburþök á steypta þakplötu, en þak yfir íþróttasal er byggt upp af grindarbitum úr stáli og verksmiðjuframleiddum þakeiningum.

ALMENNT UM VERKIÐ

Kostnaður:        680 Mkr. (bv. 254 stig)

Verkís annaðist alla verkfræðihönnun þessa mannvirkis.  Arkitektar eru ASK ARKITEKTAR.

 

 

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica