Íþrótta- og sýningarhöll í Laugardal
VERKSVIÐ VERKÍS
- Áætlanagerð
- Öll verkfræðihönnun
- Gerð útboðsgagna og kostnaðaráætlana
- Umsjón á framkvæmdatíma
LÝSING
Nýbyggingin tengist gömlu Laugardalshöllinni. Hún skiptist í frambyggingu, aðalbyggingu og tengibyggingu. Í frambyggingunni er rúmgott anddyri sem sameinar eldri og yngri byggingar auk samkomusalar fyrir 100 manns og skrifstofuaðstöðu starfsmanna.
Í aðalbyggingu er fullkominn 5.000 m² frjálsíþróttasalur með 200 m hlaupabraut, og er allur frágangur þar með því besta sem gerist í Evrópu. Salinn má einnig nota til samkomu- og sýningarhalds.
Í tengibyggingu eru minni salir, bæði fyrir íþróttir og samkomuhald, auk búningsklefa og annarrar aðstöðu fyrir notendur hússins.
Alls er nýbyggingin 9.500 m² að stærð. Eftir stækkun er Laugardalshöllin öll um 16.000 m² að stærð.
Gengið var frá lóð Laugardalshallarinnar með akvegum, bílastæðum, göngustígum og torgum á alla vegu umhverfis byggingarnar.
Burðarvirki bygginga eru að mestu úr staðsteypu, en yfir íþróttasal eru þrívíðar grindarsperrur og stálbitar yfir anddyrisbyggingu. Þök eru að mestu úr forsmíðuðum þakeiningum.
Eitt loftræsikerfi er fyrir aðalsalinn, annað fyrir aðalanddyri, þriðja fyrir fyrirlestrarsal, auk annarra smærri kerfa.
Í húsinu er miðlægt hússtjórnarkerfi sem hefur yfirsýn yfir lýsingu, gluggatjöld, fundarherbergisstjórn, loftræsikerfi og fleira.
ALMENNT UM VERKIÐ
Arkitekt: Teiknistofan T.ark hf.
Aðalverktaki: Eykt hf.
Eftirlit: Línuhönnun hf
Kostnaður: Heildarkostnaður um 1.500 Mkr.









