ÞJÓNUSTA við Heilbrigðisfyrirtæki
HEILDSTÆÐ ÞJÓNUSTA
VERKÍS býður uppá mjög fjölþætta þjónustu við öll heilbrigðis-fyrirtæki; bæði sjúkrahús, öldrunarstofnanir, heilsugæslur, vist-heimili og læknastofur.
Þjónustusvið
- Flokkun og hönnun sérhæfðra rýma
- Öryggisstjórnun, aðgangsstýring og viðbragðsáætlanir
- Ferlagreining
- Áhættustjórnun
- Orkusparnaður
- Brunahönnun og úttektir
- Hönnun rafkerfa
- Hönnun og rekstrareftirlit sérhæfðra kerfa
- Lýsingarhönnun
- Hljóðvistarhönnun
- Hönnun lagnakerfa og loftræstingar
- Rekstrarhandbækur
Við tökum þátt í að bæta vinnuaðstöðu, auka öryggi starfsmanna, vistmanna og sjúklinga, spara orku og annan rekstrarkostnað, efla reglubundið viðhald og auka vellíðan allra sem þurfa að sækja þjónustu til fyrirtækjanna.
EFTIRFYLGNI
Hjá VERKÍS leggja meira en 300 starfsmenn alúð við þjónustu sem lýkur ekki um leið og byggingar hafa verið reistar. Við fylgjum verkefnunum eftir og bjóðum þjónstu sem nær líka til fjölmargra rekstrartengdra þátta.
REYNSLA
Hjá einum og sama aðila kemur saman áratugalöng reynsla af öllum þáttum vekfræðihönnunar og fjölbreytilegum úrbótaverk-efnum fyrir rekstraraðila í heilbrigðisþjónustu.
SÉRHÆFING
Þjónusta við fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu kallar á mikla sér-hæfingu á fjölda hönnunar og rekstrartengdra sviða. Hjá VERKÍS bjóðum við aðgang að einstaklingum sem þekkja ítarlega til þarfa allra rekstraraðila á þessu sviði og hafa ekki bara á takteinum allar íslenskar reglugerðir og viðmið heldur hafa líka kynnt sér og taka mið af þróun í nágrannalöndum okkar eins og við á. Við búum alltaf að nýjustu þekkingu á hverju sviði fyrir sig.
FJÖLHÆFNI
Á einum og sama stað bjóðum við alla verkfræðiþjónustu sem heilbrigðisfyrirtæki þurfa á að halda, allt frá undirbúningi ný-bygginga með þarfagreiningu og áætlanagerð til skipulagningar á starfsháttum, ferlagreiningar, áhættumats og viðbragðsáætlana.
NOKKUR FYRRI VERKEFNI:
- Brunahönnun Landspítala Íslands Háskólasjúkrahúss
- Lagnir og sérkerfi á skurðstofur og einangrunarrými LSH-Fosvogi
- Sjúkrakallkerfi Sóltúni og Droplaugarstöðum
- Útttekt öryggismála Skógarbæ
- Lýsingarhönnun og neyðarlýsingarkerfi LSH-Fossvogi
- Rekstrarhandbók fyrir eldhús og matsali LSH -Hringbraut


