LANDSPÍTALI HÁSKÓLASJÚKRAHÚS - FOSSVOGI
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Þarfagreining kerfa og búnaðar
LYKILUPPLÝSINGAR
- Stærð: 29.000 m²
- Fjöldi legurýma: 280
-
Byggingartími:
Upphaf framkvæmda var 1965 en húsnæðið er í stöðugri þróun.
-
Rafdreifikerfi:
1250 kVA spennir
1400 kVA varavél
Rafbakhjarlar fyrir nauðsynleg rými og búnað
-
Lagnakerfi:
Almenn loftræsikerfi
Loftræsing skurðstofa
Loftræsing einangrunarrýma
Ofna- og gólfhitakerfi
Frárennsli og neysluvatn
Vatnsúðakerfi
Þrýstiloftskerfi fyrir vinnuloft,
öndunarloft og glaðloft
Kælikerfi
Snjóbræðslukerfi
- Hönnun loftræsingar, lagnakerfa fyrir vatn, fráveitu, hita, súrefni, glaðloft og sjálfvirkt slökkvikerfi
- Hönnun lagnaleiða, lágspennu-, lýsingar-, fjarskipta-, sjúkrakall- og brunaviðvörunarkerfa
- Ráðgjöf um innkaup á búnaði sem tilheyrir rafkerfum
- Brunahönnun og flóttaleiðateikningar
- Hönnun vararafkerfis með varavél og bakhjörlum
- Hljóðvistarhönnun í kringum myndgreiningarbúnað
- Prófanir og úttektir
- Gerð handbóka og þjónustubóka
- Öryggismat á rekstri raforkukerfa
LÝSING
Frá upphafi byggingar spítalans hafa Rafteikning og Fjarhitun nú sameinuð í VERKÍS hannað rafkerfi og öll lagnakerfi og veitt ráðgjöf varðandi rekstur þeirra. Á síðustu árum hefur farið fram umfangsmikil endurnýjun á húsnæði sjúkrahússins og hefur VERKÍS séð um skilgreiningu og hönnun á öllum kerfum í sambandi við hana, tekið út brunatæknilegar forsendur og annast gerð flóttaleiðateikninga. VERKÍS hefur líka annast hönnun og rekstur á verkefnavefjum fyrir hönnunargögn í tenglsum við breytingarnar.
Öll hönnunarvinna í kringum hátæknisjúkrahús eins og LSH í Fossvogi, er mjög sérhæfð og krefst umtalsverðrar þekkingar á umhverfi slíkrar stofnunar og mismunandi rekstrareininga sem þar eru. Meðal sérhæfðra rýma og svæða sem VERKÍS hefur annast hönnun á eru; skurðstofur, aðgerðarými, röntgenrými, einangrunarrými, tölvuver og lendingarpallur fyrir þyrlur svo eitthvað sé nefnt.
VERKÍS hefur á síðustu árum aflað sér þekkingar á sérstökum þörfum sjúkrahúsa og verið yfirvöldum innan handar við að breiða hana út.
ALMENNT UM VERKIÐ
Núverandi eigandi sjúkrahússins er íslenska ríkið en það var áður í eigu Reykjavíkurborgar. Húsnæðið skiptist í fjórar álmur frá þremur og upp í 15 hæðir.
Unnið er að sameiningu slysa- og bráðamóttöku LSH í Fossvogi og því verið að stækka G álmu spítalans um 200 m2.




