HEILBRIGÐISSTOFNUN VESTMANNAEYJA
VERKSVIÐ VERKÍS
LYKILUPPLÝSINGAR
- Stærð: 4.000 m²
- Fjöldi sjúkrarúma:
35 legupláss
- Byggingartími: 1962 - 1974
-
Byggingarefni:
Járnbent steinsteypa, staðsteypt
-
Rafdreifikerfi:
250 A heimtaug
Varavél fyrir húsið
Rafbakhjarlar fyrir nauðsyn-leg rými og búnað
-
Þjónusta:
Heilsugæsla
Bráðamóttaka
Legudeild
Skurð- og svæfingardeild
Dagdeild
Fæðingardeild
Rannsóknardeild
- Þarfagreining rafkerfa og búnaðar
- Hönnun lagnaleiða
- Hönnun lágspennudreifingar og varaaflkerfis
- Hönnun fjarskipta-, sjúkrakall- og brunaviðvörunarkerfa
- Hönnun lýsingar og neyðarlýsingar
- Gerð útboðsgagna fyrir rafkerfi og búnað
- Ráðgjöf um innkaup á búnaði sem tilheyrir rafkerfum
- Eftirlit, prófanir og úttektir
LÝSING
Rafteikning hf. (núna VERKÍS) hannaði rafkerfi Heilbrigðis-stofnunarinnar þegar báðar sjúkradeildir Stofnunarinnar voru sameinaðar á 2. hæð hússins. Á sama tíma var líka komið fyrir endurhæfingu, læknamóttöku og skrifstofum á 3. hæð í austur-álmunni.
júkrakallkerfi var hannað og sett upp og lýsing, neyðarlýsing og raflagnir voru allar endurnýjaðar á þeim svæðum sem áður voru nefnd. Þá var einnig hannað brunaviðvörunarkerfi í allt húsið.
ALMENNT UM VERKIÐ
Húsnæði Heilbrigðisstofnunarinnar sem er í tveimur álmum á fjórum hæðum var byggt í áföngum frá 1962 til 1974. Flutt var inn í heilsugæslustöðina sem er sambyggð sjúkrahúsinu árið 1971 og allt húsið var tekið í notkun að loknu gosi haustið 1974. Síðan hefur verið unnið að endurbótum. Á árunum 1989 – 1995 var húsið tekið í gegn að utan. Á árunum 2000-2001 voru báðar sjúkradeildir stofnunarinnar sameinaðar á 2. hæð hússins og komið fyrir endurhæfingu, læknamóttöku og skrifstofum á 3. hæð í austur álmunni.


