Landspítali háskólasjúkrahús - Hringbraut – Reykjavík
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Þarfagreining og verkefnastjórnun
LYKILUPPLÝSINGAR
-
Stærð:
51.000 m2 í samtals fimm megin byggingum
-
Fjöldi legurýma:
350
-
Byggingartími:
1926 – ..
Í mörgum áföngum
-
Byggingarefni:
Staðsteypt, járnbent steinsteypa.
-
Starfsemi:
Legudeildir
Göngudeildir
Skurðstofur
Röntgendeild
Einangrunarstofur
Bráðamóttaka
Gjörgæsla
Fæðingardeild
Geðdeild
Rannsóknarstofur
Skrifstofur
Eldhús
-
Stærð:
- Burðarþolshönnun bygginga
- Brunahönnun og flóttaleiðateikningar fyrir allar byggingar á lóðinni
- Hávaðamælingar og hljóðvistarráðgjöf í K-byggingu, matsal og vöknun
- Yfirferð verkferla og áhættumat starfa í eldhúsi
- Úttekt á neyðarlýsingu almennt á lóðinni
- Úttekt brunamála í öllum byggingum á lóðinni
LÝSING
Frá því fyrir miðja síðustu öld hefur Verkræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. sem nú er hluti af VERKÍS hf. annast burðarþols- og brunatæknilega hönnun flestra bygginga á lóð Landspítala Háskólasjúkrahúss við Hringbraut. Þess utan hefur VERKÍS sinnt mjög fjölbreyttri þjónustu varðandi hljóðvist í mismunandi rýmum, , úttekt á neyðarlýsingu og yfirferð verkferla í eldhúsi spítalans þar sem áhersla er lögð á rekstrarleyfi og smitvarnir fyrir bæði starfsfólk og sjúklinga.
VERKÍS hefur á að skipa starfsmönnum með mikla reynslu og þekkingu á sértækum þörfum sjúkrahúsa og hefur sinnt nánast öllum þáttum verkfræðiráðgjafar fyrir fjölmörg fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu. Enn fremur hafa ráðgjafar VERKÍS í sumum tilfellum verið heilbrigðisyfirvöldum innan handar við að breiða út þekkingu á þessum sviðum.
ALMENNT UM VERKIÐ
Eigandi sjúkrahússins er Ríkissjóður Íslands. Húsnæðið skiptist í grófum dráttum í fimm samtengdar en þó sjálfstæðar byggingar sem hver um sig er á fjórum eða fimm hæðum. Heildargólfflötur er u.þ.b. 51.000 m2










