Byggingar
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu
  • Lagnakerfi � Heilbr�j�nustu

LAGNAKERFI í Heilbrigðisþjónustu

 

FLÓKIN LAGNAKERFI HEILBRIGÐISFYRIRTÆKJA

Kröfur til lagnakerfa í byggingum fyrir heilbrigðisstarfsemi eru bæði strangar og

FYRRI VERKEFNI

  • LSH Fossvogi. Loftræsikerfi, þ.m.t. skurðstofur og einangrunarrými
  • LSH Fossvogi. Öll lagnakerfi, þ.m.t. neysluvatnskerfi, hitakerfi, vatnsúðakerfi, sértæk kælikerfi, glaðlofts- og súrefniskerfi.
  • Bláa Lónið - Heilsulind. Lagnakerfi
  • Nimblegen. Rannsóknarstofur og tæknirými. Loftræsi-, kæli- og hitakerfi.
  •  Múlastöð Símans. Rekstrarhandbækur.

mjög breytilegar eftir því hver notkun viðkomandi rýmis er.  Þessar kröfur koma bæði fram í reglugerðum og stöðlum en koma líka fram vegna þeirrar starfsemi sem fer fram á hverjum stað.

VERKÍS leggur á það áherslu að lagnasérfræðingar fyrirtækisins búi alltaf yfir þekkingu á þörfum bæði sértækra og almennra rýma í heilbrigðisfyrirtækjum og fylgist með þróun þessara mála ekki bara á Íslandi heldur líka í nágrannalöndunum.

HÖNNUN OG ÚTTEKTIR

VERKÍS sérhæfir sig bæði í nýhönnun lagnakerfa og úttekt á ástandi kerfa sem eru komin í rekstur. VERKÍS leggur áherslu á vandaða greiningu verkefna og forhönnun strax í upphafi verks til að tryggja að tekið sé tillit til allra nauðsynlegra þátta og að lokahönnun verði í samræmi við óskir verkkaupa. 

Lagnahönnuðir VERKÍS sjá til þess að verkefnin séu leyst með tilliti til ytri og innri krafna og jafnframt að samræmis sé gætt við önnur kerfi.

Við val lausna er ávallt tekið tillit til gæða, áhrifa á starfsmenn og sjúklinga, kostnaðar og rekstrarkostnaðar.

REKSTRAR- OG VIÐHALDSHANDBÆKUR

Rekstrar- og viðhaldshandbækur VERKÍS eru settar upp til að einfalda umsjónarmönnum tæknilega margþættra og flókinna kerfa yfirsýn yfir starfssvið sitt og stuðla að hagkvæmum rekstri og þekkingu á þeim kerfum sem eru til staðar.  Í þeim er m.a:

  • Lýsing á viðkomandi tæknikerfi
  • Daglegt og reglubundið verksviði umsjónarmanns
  • Nauðsynleg neyðarviðbrögð
  • Grunnteikningar, merkingar og staðsetning búnaðar
  • Upplýsingar um þjónustuaðila

ORKUSPARNAÐUR

VERKÍS veitir ráðgjöf um eðlilega orkunotkun bygginga gerir úttekt á orkunotkun og ráðleggur úrbætur til að draga úr henni. Leiðir til sparnaðar geta t.d. verið:

  • Endurnýjun á úr sér gengnum búnaði
  • Endurstilling á kerfum
  • Nýting upplýsinga í hússtjórnarkerfi
  • Endurskoðun viðhaldsáætlana

PDF-útgáfa

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumál



Þetta vefsvæði byggir á Eplica