RAFKERFI í Heilbrigðisþjónustu
SÉRÞEKKING
Hönnun og rekstur rafkerfa í sjúkrahúsum og fyrirtækjum í heilbrigðisþjónustu
MÆLA- OG GREININGARBÚNAÐUR
- Power Quality Analyser
Til greiningar á gæðum raforkufæðingar - Power Analyser
Til greiningar á álagi rafkerfisins - Power Disturbance Analyser
Til greiningar á truflunum í rafkerfinu - Installation tester
Til greiningar á leiðni spennujöfnunar – og jarðtengingan
krefst sérþekkingar á gildandi reglugerðum, stöðlum og viðmiðum. Gott rafkerfi er forsenda rekstrarleyfis, hvetjandi vinnuumhverfis og samfelldrar og öruggrar þjónustu við bæði sjúklinga og aðra notendur.
RÝMI
Til viðmiðunar við hönnun raflagna í sjúkrahúsum eru mismunandi rýmum skipt í fjóra flokka
- Almennt Rými, önnur en aðgerðastofur
- Flokkur 0 Aðgerðastofur þar sem ekki verða notaðir snertilhlutir í læknisfræðilegum tilgangi
- Flokkur 1 Aðgerðastofur með snertihlutum, aðrar en í flokki 2
- Flokkur 2 Aðgerðastofur fyrir lífsnauðsynlega meðhöndlun þar sem bilunrafkerfis getur valdið lífshættu
Hönnuðir VERKÍS ráða yfir þekkingu og reynslu til að hanna rafkerfi fyrir öll rými.
GÆÐI
Þegar horft er til gæða raforku er litið til þess að bæði rafkerfið í heild sinni og einstök tæki vinni alltaf eins og til er ætlast. Til að tryggja það er nauðsynlegt að hönnuðurinn þekki allar forsendur strax frá upphafi. Í framhaldi af hönnun og uppsetningu er gerð krafa um prófanir og úttektir með sérhæfðum greiningarbúnaði og gripið til úrbóta ef þörf er á. Jafnframt er gerð krafa um reglu-bundnar úttktir á öllum sérhæfðum rafkerfum.
Sérfræðingar VERKÍS annast úttektir og prófanir, gera gátlista og handbækur og skilgreina nauðsynleg úrbótaverkefni.
JARÐBINDING - SPENNUJÖFNUN
Meðal mikilvægustu atriðanna í rýmum í flokki 2 er að frágangur jarðtenginga og spennujöfnunar sé réttur. Eins eru sérstakar kröfur gerðar til starfsfólks varðandi umgengni í rýmunum.
Sérfræðingar VERKÍS bjóða uppá námskeið í umgengni viðkvæmra rýma til að tryggja að öllum reglum sé fylgt.
VERKÍS Í FYRSTA FLOKKI
Sérfræðingar VERKÍS í rafkerfum heilbrigðisfyrirtækja standast samanburð við þá bestu þegar kemur að hönnun, úttektum, prófunum og kennslu í umgengni við rafkerfi í öllum rýmum sjúkrahúsa og annarra fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu.


