Byggingar
  • IMG_9027
  • IMG_9028
  • IMG_9029
  • IMG_9030
  • IMG_9031
  • IMG_9032
  • IMG_9033
  • IMG_9036
  • IMG_9037
  • IMG_9038
  • IMG_9041
  • IMG_9042
  • IMG_9044
  • IMG_9045
  • IMG_9047
  • IMG_9048
  • IMG_9049
  • IMG_9083
  • IMG_9084
  • IMG_9085

Hlíð – Hjúkrunar og dvalarheimili á Akureyri

 VERKSVIÐ VERKÍS

  • Burðarþolshönnun bygginga

    LYKILUPPLÝSINGAR

    • Stærð:
      10.500 m2 í samtals fjórum megin byggingum og 12 raðhúsaíbúðum
    • Fjöldi legurýma
      148
    • Byggingartími:
      1962 – ..
      Í mörgum áföngum
    • Byggingarefni:
      Staðsteypt, járnbent steinsteypa.
    • Starfsemi:
        9 öldrunar deildir
        12 raðhúsaíbúðir
        Mötuneyti
        Læknisþjónusta
        Sjúkraþjálfun
        Iðjuþjálfun
        Félagsstarf
        Þjónusta Presta
        Verslun
        Hárgreiðslustofa
        Fótaaðgerðastofa
        Þvottahús
  • Brunahönnun og flóttaleiðateikningar
  • Lagna og loftræsihönnun
  • Raflagnir, brunaviðvörunarkerfi og neyðarlýsing
  • Sjúkrakallkerfi og fjarskiptakerfi
  • Sjálfvirkt slökkvikerfi
  • Verkefnis- og hönnunarstjórn ásamt Arkitektur.is

 

LÝSING

Öldrunarheimilið Hlíð á Akureyri var vígt 29. ágúst 1962 á 100 ára afmæli Akureyrarbæjar.  Þá var húsnæðið um 2.800 m².  Fyrstu heimilismenn voru 7.  Í dag búa 143 íbúar í Hlíð, auk þess sem rými er fyrir 5 einstaklinga í skammtímadvalir.  Heildar fermetra-fjöldi bygginga er nú um 10.500 m².

Nýjasta viðbyggingin á Hlíð var vígð 2006.  Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. (VST) sem nú er hluti af VERKÍS hf. annaðist þar hönnun burðarþols, lagna, loftræsingar, raflagna, brunatækni, og hljóðtækni.  Á hönnunartíma annaðist VST verkefnis og hönnunarstjórn í samvinnu við Arkitektur.is.  Í byggingunni er hjúkrunarheimili með 60 einstaklingsherbergjum, eldhús, matsalur og búningsaðstaða fyrir starfsfólk.  Byggingin er þrjár hæðir og tæknirými í risi, samtals 3.964 m².  Tengigangur liggur frá viðbyggingunni yfir í eldri byggingu.

Hið nýja eldhús sem er í viðbyggingunni er sérlega glæsilegt og vel tækjum búið.  VST veitti sérstaka ráðgjöf við tækjakaup uppsetningu og frágang eldhússins sem talið er að geti annað um 1.000 manns á fullum afköstum.

VERKÍS hefur á að skipa starfsmönnum með mikla reynslu og þekkingu á sértækum þörfum öldrunarheimila og hefur sinnt fjölmörgum þáttum verkfræðiráðgjafar fyrir fjölda fyrirtækja í heilbrigðisþjónustu. 

ALMENNT UM VERKIÐ

Eigandi öldrunarheimilisins er Akureyrarbær.  Húsnæðið skiptist í grófum dráttum í fjórar samtengdar byggingar sem hver um sig er á einni til þremur hæðum.  Einnig eru 12 einnar hæðar raðhúsaíbúðir í tveimur sjálfstæðum byggingum.

Heildargólfflötur er u.þ.b. 10.500 m2

PDF-útgáfa

 

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica