FSA - Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Þarfagreining
LYKILUPPLÝSINGAR
- Stærð:
25.000 m2 í samtals fimm megin byggingum - Fjöldi legurýma
176 - Byggingartími:
1953 – ..
í mörgum áföngum - Byggingarefni:
Staðsteypt, járnbent steinsteypa. -
Starfsemi:
Legudeildir
Göngudeildir
Skurðstofur
Myndgreiningardeild
Einangrunarstofur
Bráðamóttaka
Gjörgæsla
Fæðingardeild
Geðdeild
Rannsóknarstofur
Skrifstofur
Eldhús
- Stærð:
- Burðarþolshönnun bygginga
- Brunahönnun og flóttaleiðateikningar
- Lagna og loftræsihönnun
- Hönnun sjúkragaslagna
- Hönnun kælikerfa
LÝSING
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri á rætur sínar að rekja aftur til ársins 1873 og skartar því lengstu samfelldu sögu sjúkrahúsa á Íslandi. Árið 1953 flutti stofnunin á núverandi stað, í þá nýbyggða sjúkrahússbyggingu upp á 925 m².
Frá árinu 1970 hefur Verkræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. sem nú er hluti af VERKÍS hf. annast burðarþols-, lagna- og brunatæknilega hönnun á flestum nýbyggingum og breytingum á fasteignum FSA. Þar á meðal má telja hönnun loftræsikerfa og sjúkragaslagna í alla flokka rýma, bæði almenn rými, skurðstofur, myndgreiningarstofur og önnur rými sem kalla á sérþekkingu á kröfum til sjúkrahúsa.
VERKÍS hefur á að skipa starfsmönnum með mikla reynslu og þekkingu á sértækum þörfum sjúkrahúsa og hefur sinnt flestum þáttum verkfræðiráðgjafar fyrir fjölmörg fyrirtæki í heilbrigðis-þjónustu.
ALMENNT UM VERKIÐ
Eigandi sjúkrahússins er Ríkissjóður Íslands. Húsnæðið skiptist í grófum dráttum í fjórar samtengdar en þó sjálfstæðar byggingar sem hver um sig er á tveimur til fjórum hæðum, stakstæða 600 m² byggingu og Kristnesspítala í Eyjafjarðarsveit sem heyrir einnig undir FSA. Heildargólfflötur er u.þ.b. 25.000 m2

