Landspítali háskólasjúkrahús – Grensásdeild - Reykjavík
Meginmál
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Hönnun raflagna og fjarskiptalagna
Lykilupplýsingar
- Stærð:
5.800 m2 samtals, endurhæfingarhúsnæði og innisundlaug. - Fjöldi sjúkrarúma:
48 - Byggingartími:
Aðalbygging 1970 – 1973
Sundlaug 1984 - 1985 - Starfsemi:
Endurhæfing
Sjúkraþjálfun
Iðjuþjálfun
Talþjálfun
Taugarannsóknarstofa
Taugasálfræði
Meðferðarsundlaug
- Stærð:
- Hönnun lýsingar og neyðarlýsingar
- Gerð handbókar fyrir neyðarlýsingarkerfi
- Hönnun og þjónusta við brunaviðvörunarkerfi
- Brunahönnun og flóttaleiðateikningar
- Úttekt brunamála; brunahólfun, brunaviðvörunarkerfi, aðkoma slökkviliðs og flóttaleiðir
LÝSING
Allt frá byggingu Grensásdeildar Borgarspítalans hefur Rafteikning hf. sem nú eru hluti af VERKÍS annast hönnun raflagna, lýsingar og fjarskiptakerfa fyrir aðstöðu deildarinnar sem nú tilheyrir Landspítala Háskólasjúkrahúsi. Í gangi er úttekt og gerð hand-bókar fyrir neyðarlýsingarkerfi bygginganna.
Enn fremur hefur Fjarhitun hf. sem nú er líka hluti af VERKÍS sinnt hönnun og úttektum og haldið utan um umbætur á brunatæknilegri útfærslu bygginga á svæðinu. Þar hefur m.a. verið tekið á brunahólfun, flóttaleiðamerkingum, umbótum í loftræsingu og ástandi brunaviðvörunarkerfisins.
Á síðari árum hefur VERKÍS líka tekið að sér rekstur á veftengdu skjalavistunarkerfi til að halda utan um þau hönnunargögn sem tengjast einstökum verkefnum við deildina.
VERKÍS hefur á að skipa starfsmönnum með mikla þekkingu og reynslu af hönnun og ráðgjöf við fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu. Fyrirtækið hefur í ákveðnum tilfellum tekið að sér að vera yfirvöldum innan handar við að breiða þessa þekkingu út bæði meðal starfsmanna heilbrigðisfyrirtækja og háskólanemenda í heilbrigðisgreinum.
ALMENNT UM VERKIÐ
Eigandi Grensásdeildar er núna íslenska ríkið. Húsnæðið skiptist í grófum dráttum í tvær einingar. Annars vegar endurhæfingar-deild með legurýmum og hins vegar meðferðarsundlaug innan-húss sem var tekin í notkun 12 árum á eftir aðalbyggingunni.
















