Droplaugastaðir
VERKSVIÐ VERKÍS
-
Hönnun rafkerfa
Lykilupplýsingar
- Stærð:
Um 7.000 m2 á 4 hæðum
auk riss og kjallara - Fjöldi vistrýma
Um 90 - Byggingartími:
1980 – 2005
Í tveim áföngum - Starfsemi:
Hjúkrunardeildir
Kjarnar fyrir minnissjúka
Mötuneyti
Sjúkraþjálfun
Iðjuþjálfun
Félagsstarf
Hárgreiðslustofa
Fótaaðgerðastofa
Þvottahús
- Stærð:
- Aðaldreifing
- Almenn rafkerfi
- Lýsingakerfi
- Fjarskiptakerfi
- Öryggiskerfi, s.s., brunaviðvörunarkerfi, hurðastýringar, sjúkrakallkerfi o.fl.
- Gerð útboðsgagna
- Fageftirlit með rafkerfum á framkvæmdatíma
LÝSING
Bygging Droplaugarstaða hófst um 1980. Þá voru byggðar þrjár hæðir með vistrýmum og annarri þjónustu auk tæknirýma o.fl. í kjallara og risi. 2004 var byggð fjórða hæðin með vistrýmum ofan á þriðju hæðina og risið ásamt tæknirýmum endurbyggt þar ofan á. Í framhaldi af byggingu nýrrar 4. hæðar hófst endurnýjun á 3., 2. og 1. hæð í þessari röð auk kjallara að hluta til.
Í framhaldi af þessu var hönnuð um 400 m2 viðbygging með þjónusturýmum og stækkun samkomusalar, en hún hefur ekki verið byggð ennþá.
Rafteikning, núna hluti af Verkís, hefur annast hönnun rafkerfa og gerð útboðsgagna frá upphafi. Einnig sá Verkís um útboðsgögn fyrir endurnýjun á sjúkrakallkerfi hússins 1997. Kerfið var síðan endurnýjað aftur í tengslum við stækkunina 2004. Það kerfi sem nú er í notkun inniheldur, auk hefðbundinnar virkni sjúkrakall-kerfa, möguleika á sérstakri vöktun eftir hegðunarmynstri, auk þess að bjóða upp á auðveldan aðgang að allri tölfræði (statistik) um aðgerðir í kerfinu.
ALMENNT UM VERKIÐ
Eigandi Droplaugarstaða er Reykjavíkurborg. Húsnæðið skiptist í grófum dráttum í fjórar hæðir með vistrýmum og tengdri þjónustu, auk tæknirýma í kjallara og í risi.
Á Droplaugarstöðum er lögð áhersla á heimilislegt umhverfi, virðingu fyrir einkalífi, athafnasemi, öryggi og vellíðan bæði íbúa og starfsfólks.
