Landspítali háskólasjúkrahús – Kleppi - Reykjavík
VERKSVIÐ VERKÍS
- Þarfagreining
- Hönnun raflagna og fjarskiptalagna
- Hönnun og þjónusta við brunaviðvörunarkerfi
- Brunahönnun og flóttaleiðateikningar
- Úttekt brunamála; brunahólfun, brunaviðvörunarkerfi, aðkoma slökkviliðs og flóttaleiðir
LÝSING
Um árabil hafa Verkfræðistofa Sigurðar Thoroddsen hf. og Rafteikning hf. sem nú eru hluti af VERKÍS hf. annast hönnun, úttektir og endurbætur raflagna, fjarskiptakerfa og brunaviðvörunarkerfa fyrir aðstöðu Geðsviðs Landspítala Háskólasjúkrahúss á Kleppi. Í gangi er gerð handbókar fyrir neyðarlýsingarkerfið á staðnum.
Enn fremur hefur VERKÍS sinnt hönnun og úttektum og haldið utan um umbætur á brunatæknilegri útfærslu bygginganna á svæðinu. Í því sambandi hefur m.a. verið tekið á brunahólfun, flóttaleiðamerkingum, umbótum á loftræsingu og ástandi brunaviðvörunarkerfisins.
VERKÍS hefur líka sinnt rekstri á veftengdu skjalavisturnarkerfi til að halda utan um þau hönnunargögn sem tengst hafa einstökum verkefnum á LSH Kleppi.
VERKÍS hefur á að skipa starfsmönnum með mikla þekkingu og reynslu af hönnun og ráðgjöf við fyrirtæki í heilbrigðisþjónustu.
ALMENNT UM VERKIÐ
Fyrsta byggingin sem reist var undir þjónustu við geðfatlaða á Kleppi var tekin í notkun árið 1905. Núverandi aðalbygging var reist á árunum 1919 – 1929. Síðan þá hefur bæst við nokkur fjöldi bygginga sem meðal annars gegna hlutverki íbúðarhúsnæðis fyrir starfsfólk, samkomusalar og ýmiss konar iðjuþjálfunar.
