Byggingar
  • Picture3
  • Picture2
  • Picture4
  • Picture5
  • Picture6
  • Picture7

Aðalstúka Laugardal

VERKSVIÐ VERKÍS

  • Áætlanagerð
  • Hönnun burðarvirkja
  • Hönnun jarðvinnu
  • Hönnun brunavarna
  • Hönnun frárennslislagna
  • Hönnun neysluvatns- og hitalagna
  • Hönnun loftræsingar
  • Hönnun raflagna

LÝSING

Byggingin er reist við vesturhlið núverandi stúkubyggingar við Laugardalsvöll. Húsið er kjallari og þrjár hæðir. Tvær efstu hæðirnar eru í eigu KSÍ ehf., en þar verða skrifstofur og fræðslumiðstöð.

Húsið sjálft er rúmir 800 m2 að grunnfleti, alls um 3.300 m2. Eftir þessa viðbót verður byggingin um 6.000 m2. Við báða enda núverandi áhorfendastúku hafa verið reistar nýjar áhorfendastúkur, hvor um 1.000 m2 að grunnfleti. Einnig voru byggðir áhorfendapallar og aðstaða fyrir leikmenn framan við núverandi stúku.

Þak eldri stúku hefur verið endurbyggt og nær út yfir báðar hliðarstúkurnar og er að auki byggt lengra fram en eldra þak. Eftir þessa stækkun fjölgar sætum fyrir áhorfendur við leikvanginn úr um 7.000 í hátt í 10.000

Burðarvirki byggingarinnar er steinsteypt. Veggir og plötur eru almennt úr staðsteypu. Neðra burðarkerfi og pallar í hliðarstúkum eru úr forsteyptum einingum, staðsteyptum undirstöðum og veggjum undir þakfestingar.

Í þaki áhorfendastúkunnar er burðarvirkið úr stáli klætt með

ALMENNT UM VERKIÐ

Samstarfsaðilar Verkís voru:

Arkitektar bygginganna eru Teiknistofa arkitekta ehf. (TARK), Brautarholti 6. Umsjón framkvæmda f.h. KSÍ hefur Verkfræðiþjónusta Magnúsar Bjarnasonar.



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica