Vatnaveröld Reykjanesbæ
VERKSVIÐ VERKÍS
- Öll verkfræðihönnun auk brunatæknilegrar hönnunar
- Hönnunarstjórn
- Verkefnisstjórn
- Gerð útboðsgagna
- Gerð kostnaðar- og framkvæmdaráætlana
- Framkvæmdaeftirlit
LÝSING
Eignarhaldsfélagið Fasteign hf. byggði nýja 50 m innisundlaug og innivaðlaug fyrir Reykjanesbæ við eldri 25 m útisundlaug við Sunnubraut í Keflavík.
Verkefni VST fólst í verkfræðihönnun innisundlaugar og innivaðlaugar. Laugin er með sex brautir og er 15,5 m á breidd, dýpt laugarinnar er 1,5 til 1,8 m. Í miðri laug er brú sem hægt að lyfta upp og þannig breyta lauginni í 25 m keppnislaug. Þannig er jafnframt hægt að kenna tveimur bekkjum skólasund á sama tíma.
Í grynnri enda laugarinnar eru upptakalegar botneiningar á um 140 m2 svæði sem gerir laugina 1 m djúpa og hentar því vel fyrir kennslu ungra barna.
Sundlaugin uppfyllir þær kröfur sem gerðar eru fyrir keppni í innanlandsmótum, Norðurlandamótum og alþjóðlegum mótum, þó ekki alþjóðlegum meistaramótum.
Heildarstærð nýbyggingar er 3.120 m2.
Arkitektar: T.ark arkitektar.
Verktaki: Atafl var aðalverktaki við framkvæmdina.
Verkfræðistofa Suðurnesja sá um eftirlit með ver
