Iðnaður
  • Verkis-Fjardaral-001
  • Verkis-Fjardaral-002
  • Verkis-Fjardaral-003
  • Verkis-Fjardaral-032
  • Verkis-Fjardaral-004
  • Verkis-Fjardaral-005
  • Verkis-Fjardaral-006
  • Verkis-Fjardaral-008
  • Verkis-Fjardaral-010
  • Verkis-Fjardaral-009
  • Verkis-Fjardaral-011
  • Verkis-Fjardaral-012
  • Verkis-Fjardaral-007
  • Verkis-Fjardaral-014
  • Verkis-Fjardaral-016
  • Verkis-Fjardaral-013
  • Verkis-Fjardaral-015
  • Verkis-Fjardaral-024
  • Verkis-Fjardaral-017
  • Verkis-Fjardaral-023
  • Verkis-Fjardaral-026
  • Verkis-Fjardaral-021
  • Verkis-Fjardaral-019
  • Verkis-Fjardaral-027
  • Verkis-Fjardaral-025
  • Verkis-Fjardaral-020
  • Verkis-Fjardaral-018
  • Verkis-Fjardaral-028
  • Verkis-Fjardaral-029
  • Verkis-Fjardaral-022
  • Verkis-Fjardaral-031
  • Verkis-Fjardaral-030

Alcoa Fjarðaál – umhverfisvöktun og grænt bókhald

VERKSVIÐ Verkís

 

 

  •   Skipulagning og umsjón með vöktun
    Helstu Niðurstöður 

    Vöktun á:

    • Loftgæðum
    • Gróðri
    • Vatnafari
    • Útstreymi gróðurhúsalofttegunda
    • Hljóðstigi

     

    Í grænu bókhaldi er skráð:

    • Notkun á hráefni og auðlindum.
    • Notkun hættulegra efna.
    • Losun mengandi efna.
    • Magn og meðferð úrgangs.
  •   Túlkun niðurstaðna og ritun greinagerða
  •   Grænt bókhald

 

VÖKTUN

HRV,  verkfræðisamsteypa Verkís og Mannvits, lagði grunninn að vöktunaráætlun fyrir álver Alcoa Fjarðaáls vegna umsóknar um starfsleyfi og mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar.  Eftir að starfsemin hófst hefur HRV haldið utan um vinnu við vöktunina, túlkar niðurstöður og setur þær fram í árlegri greinargerð. 

 Vöktunaráætlun álversins felur meðal annars í sér:

  • Reglubundnar mælingar á brennisteinsdíoxíði, flúoríði, svifryki og PAH í lofti á sömu stöðum og bak­grunnsmælingar.
  • Ljósmyndun á fléttum á klöppum á sömu stöðvum og í bakgrunnsrannsóknum.
  • Mælingar á flúoríði í mosa, grasi, laufi, furunálum, og þungmálmum og brenni­steini í grasi, laufum og furunálum.
  • Vistfræðimælingar á 30 mælistöðum í Reyðarfirði.
  • Efnamælingar á jarð- og yfirborðsvatni og snjó.
  • Mælingar á hljóðstigi.

 Áður en rekstur hófst fóru fram bakgrunnsrannsóknir á umhverfinu og andrúmslofti, til að hafa til samanburðar á starfstíma álversins. 

Niðurstöður vöktunar eftir fyrsta starfsár álversins voru gefnar út í apríl 2008.   

Grænt bókhald

HRV, hefur haldið utan um vinnu við gerð græns bókhalds fyrir Alcoa Fjarðaál, en atvinnustarfsemi sem er háð starfsleyfi þarf að halda grænt bókhald og skila árlegri skýrslu til umhverfisstofnunar.  Grænt bókhald er efnisbókhald þar sem fram koma upplýsingar um hvernig umhverfismálum er háttað í viðkomandi starfsemi.  Í ársskýrslu er skráð notkun á hráefnum og auðlindum, losun mengandi efna úr þurrhreinsivirki og mænum kerskála auk magns og meðferðar úrgangs.

 

ALMENNT UM VERKIÐ

Álver Alcoa Fjarðaáls að Hrauni í Reyðarfirði var gangsett í apríl 2007 og var komið í fullan rekstur ári síðar.  Álverið framleiðir 346.000 tonna af áli árlega með rafgreiningu í 336 kerum.  Álverið fær rafmagn frá Kárahnjúkavirkjun en hún er með 690 MW uppsett afl.  Öll tækni og tæki álversins eru ný, byggð á nýjustu tækni og af bestu fáanlegu gerð, skv. BAT staðli.

 



Leita á vefnum


Útlit síðu:




Þetta vefsvæði byggir á Eplica