Verkefni

Ilulissat vatnsaflsvirkjunin

Ilulissat vatnsaflsvirkjunin er staðsett við Disco flóa, Vestur-Grænlandi, á norðurslóðum við 69°N, um 45 km norðaustur af bænum.

Virkjað rennsli er 15 rúmmetrar á sekúndu og fallhæð 186 m.

Nánar um verkefnið

Ilulissat vatnsaflsvirkjunin er þriðja vatnsaflsverkefnið á Grænlandi, þar sem Verkís er aðalhönnuður. Verkefnið kemur í kjölfar framkvæmda við virkjanir í Qorlortosuaq (7,5 MW, í rekstur 2006) og Sisimiut (15 MW, í rekstur 2009).  Pihl/Ístak var framkvæmdaraðili við öll þrjú verkefnin.

Verkefnið virkjar rennsli frá tveimur náttúrulegum jökullónum á svæðinu „Paakitsup Akuliarusersua“ með niðurdrætti í vatnshæð um annars vegar 30 m og hins vegar 50 m.  Vatn er leitt frá efra vatninu í gegnum aðflutningsgöng, stjórnað með lokum.  Neðra vatnið þjónar sem inntakslón, og þaðan er vatnið leitt í gegnum inntaksmannvirki að hallandi ófóðruðum fallgöngum, að hluta í sífrera, niður í þrjár 7,5 MW Francis vélar á lóðréttum ás í neðanjarðar stöðvarhúsi, staðsett við sjávarmál um 400 m inni í fjallinu.  Við hlið stöðvarhússins er spenna- og rofahellir. Frá túrbínunum rennur vatnið út í frárennslisgöng, sem liggja til sjávar.

Við munna aðkomuganga stöðvarhússins er steypt þjónustuhús, sem hýsir þjónustuaðstöðu og geymslur fyrir virkjunina og starfsfólk hennar.  Auk þess er í byggingunni fullbúið gistirými fyrir 10 manns.  Höfn og hafnarhús, sem hýsir neyðardísilvél og flutningabíla, er einnig hluti af verkefninu.  Aðveitustöð búin tveimur spennum, rofabúnaði og viðeigandi stjórnbúnaði er staðsett í bænum Ilulissat.

Framleitt rafmagn virkjunarinnar sér Ilulissat (um 4.500 íbúa) fyrir rafmagni, og kemur í staðinn fyrir dísilrafstöðvar, og gerir bæinn þannig óháðan innfluttu eldsneyti.

Sérfræðingar Verkís unnu mat á staðháttum, verkhönnun, deilihönnun byggingarvirkja, útboðshönnun og gerð útboðsgagna fyrir raf- og vélbúnað sem og samræmingu deilihönnunar undirverktaka á þeim búnaði, og úttektir og gangsetningu virkjunarinnar.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Grænland   

Stærð:

22,5 MW

Verktími:

2009 – 2014  

 

Heimsmarkmið