Umhverfi og byggðir
  • Verkis-018
  • Verkis-019
  • Verkis-020
  • Verkis-022
  • Verkis-023
  • Verkis-024
  • Verkis-025
  • Verkis-026
  • Verkis-027
  • Verkis-028
  • Verkis-029
  • Verkis-030
  • Verkis-031
  • Br� yfir Reykjanesbraut (Brei�holtsbr�
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • Br� yfir Reykjanesbraut
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • N�b�lavegur
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut
  • Reykjanesbraut

REYKJANESBRAUT milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika

 

VERKSVIÐ VERKÍS

Tækniupplýsingar

  •  Reykjanesbraut:

    Lengd vegarkafla: 4.000 m

    Fjöldi akreina: 4 auk blöndunarreina 

    Breidd vegar og axla: 11,5 m

    Breidd miðdeilis: 11 m

    Mesti langhalli vegar: 3,4 %

    Mesti langhalli rampa: 7,0 %

  • Gatnamót

    Á kaflanum eru þrenn mislæg gatnamót, við Arnarnesveg, Vífilsstaðaveg og Urriðaholt.

  • Jarðvinna:

    Skeringar í laus jarðlög: 380 þús m3

    Bergskeringar: 70 þús. m3

    Fyllingarefni: 130 þús. m3

  • Brýr og undirgöng

    Steypa: 5.700 m3

    Steypustyrktarstál: 600 tonn 

  • Regnvatnslagnir:

    Lengd regnvatnslagna 10 km

  • Umferðarmerki:

    Fjöldi almennra merkja: 300 stk

  • Gatnalýsing

    Fjöldi ljósastaura:  400 stk.

  • Aðrir hönnuðir:

    Landslag ehf., Úti og inni og Vinnustofan Þverá

Verkís kom að nær öllum þáttum hönnunar Reykjanesbrautar milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika.  Meðal verkþátta voru:

  • Vega- og stígahönnun
  • Hönnun þriggja mislægra gatnamóta
  • Brúarhönnun
  • Hönnun undirganga
  • Hönnun regnvatnslagna
  • Umferðarspár
  • Umferðarhermun
  • Jarðvegs- og straumfræðiathuganir
  • Hönnun hljóðvarna
  • Hönnun veglýsingar
  • Gerð útboðs- og verklýsinga

 

LÝSING

Um var að ræða forhönnun og verkhönnun fyrir tvöföldun þjóðvegar nr. 41, Reykjanesbraut milli Fífuhvammsvegar í Kópavogi og Kaplakrika í Hafnarfirði auk tilheyrandi gatnamóta.

Í fyrsta áfanga var Reykjanesbraut tvöfölduð með byggingu nýrrar akbrautar við hlið þeirrar gömlu og gerð gatnamót í plani til bráðabirgða við Arnarnesveg og vífilsstaðaveg.  Einnig voru undirgöng fyrir bíla við Hnoðraholt lengd.  Samhliða tvöföldum voru gerð mislæg gatnamót við Urriðaholt og síðar mislæg gatnamót við Arnarnesveg og vífilsstaðaveg.

Undirgöng fyrir gangandi vegfarendur voru gerð á 4 stöðum, við Bæjargil, við Vífilsstaðaveg og undir Arnarnesveg og Vífilsstaðaveg auk þess sem hannaðir voru stígar sem tengjast stígakerfi bæjarfélaganna.

Gerð var umferðarspá, byggð á uppbyggingaráætlunum í framtíð, og afkastageta vega og gatnamóta metin til að ákvarða hönnunarstærðir.

Farnar voru nýjar leiðir við að velja hagkvæmustu lausn gatnamóta með því að herma umferð í framtíð.  Á grundvelli umferðarhermunar var ákveðið að byggja mislægt hringtorg við gatnamótin við Arnarnesveg, hið fyrsta sinnar tegundar á Íslandi.

Hljóðvist var reiknuð með öllum vegum og hljóðvarnir hannaðar, bæði jarðvegsmanir, styrkatar manir með grjótbúrum og hljóðveggir.  Miklar kröfur voru gerðar um bætta hljóðvist í samræmi við úrskurð umhverfisráðherra

ALMENNT UM VERKIÐ

Reykjanesbrautin er ein helsta stofnbrautin á höfuðborgarsvæðinu.  Hún tengir suðurhluta höfuðborgarsvæðisins við norður og vesturhluta þess ásamt því að tengja Flugstöð Leifs Eiríkssonar og Suðurnesin við landið allt.  Á kaflanum milli Fífuhvammsvegar og Kaplakrika liggur hún um bæði Kópavog og Garðabæ og suður yfir sveitarfélagamörk við Hafnarfjörð.  Fyrirhugað er að á næstu árum verði öll gatnamót við Reykjanesbraut orðin mislæg, allt frá fyrirhugaðri Sundabraut til Keflavíkur

 PDF-útgáfa



Leita á vefnum


Útlit síðu:


Tungumálaval




Þetta vefsvæði byggir á Eplica