HVALFJARÐARGÖNG
VERKSVIÐ VERKÍS
Verkís kom að nær öllum þáttum hönnunar Hvalfjarðarganga:
Tækniupplýsingar
-
Hvalfjarðargöng:
Lengd ganga: 5.650 m
þar af eru 3.750 m undir sjávarmáli
Dýpt undir sjávarmáli 165 m
Mesta dýpt sjávar 40 m
Bergþykkt yfir göngum >40 m
Vatnsrými dælukerfis fyrir lekavatn: 2.000 m3
-
Langhalli:
4-7% að sunnan
8,1% að norðan
-
Lengd steyptra vegskála:
225 m að sunnan
65 m að norðan
-
Umferð:
Göngin voru hönnuð til að anna
5 þús. bíla umferð á sólarhring
-
Framkvæmdakostnaður:
5.000Mkr. eða um 70 milljónir $
-
Aðrir hönnuðir:
Skanska teknik AB
Raftákn
- Hönnun vegar og veglínu
- Hönnun steyptra gangamunna
- Hönnun spennistöðva í göngum
- Hönnun tollskýlis
- Hönnun regnvatnslagna
- Hönnun dælukerfis fyrir lekavatn í botni ganganna
- Umferðarmerkingar
- Áhættugreining
LÝSING
Hvalfjarðargöng þvera Hvalfjörðinn utarlega eða á móts við Tíðarskarð og Hnausaker. Göngin liggja í bergi undir fjörði
nn og stytta vegalengdina vestur og norður í land eftir þjóðvegi 1 um 42 km.
Göngin eru tvær akreinar, en að norðanverðu er þriðju akreininni bætt við til að gefa möguleika á framúrakstri. Einnig eru í göngunum útskot á 500 m fresti til að snúa bílum.
Framkvæmdirnar mörkuðu tímamót í stórframkvæmdum á Íslandi því í fyrsta skipti var farin sú leið að einkafyrirtæki stóð að framkvæmdunum og fjármagnaði þær án aðkomu ríkissjóðs.
Fyrirtækið Spölur ehf. sá um framkvæmdina og á nú og rekur göngin. Fyrirtækið innheimtir veggjald af vegfarendum til að borga fyrir framkvæmdina en íslenska ríkið mun eignast göngin þegar þau verða að fullu greidd.
ALMENNT UM VERKIÐ
Hvalfjarðargöngin tengja suður og suðvesturland við vesturland og norðurland. Þjóðvegur 1, eða Vesturlandsvegur eins og hann heitir þarna, liggur um göngin sem eru við utanverðan Hvalfjörð.
Göngin voru grafin á árunum 1996-1998 og voru opnuð fyrir bílaumferð þann 11. júlí 1998.







