Veitur
VEITUR
Verkís veitir fjölbreytta þjónustu og ráðgjöf við undirbúning og hönnun veitumannvirkja, s.s. fyrir fráveitur, hitaveitur eða vatnsveitur.
Fyrirtækið býr yfir sérfræðingum með áratuga reynslu á sviði veitumála þegar kemur að hönnun lagna, vélbúnaðar, rafbúnaðar og stjórnkerfa. Í áratugi hefur Verkís sinnt fjölmörgum verkefnum af öllum stærðum og gerðum á sviði vatns- og hitaveitumála og unnið fyrir opinbera jafnt sem einkaaðila. Ásamt þeirri þjónustu sem fyrirtækið býður upp á veitir það einnig ráðgjöf við veitubyggingar, dælustöðvar, miðlunargeyma, stofnæðar og önnur veitumannvirki.
- Sigurður Grétar Sigmarsson
- Vatnsauðlindaverkfræðingur / Viðskiptastjóri
- Svið: Samgöngur og umhverfi
- sgrs@verkis.is
- Vala Jónsdóttir
- Umhverfisverkfræðingur
- Svið: Samgöngur og umhverfi
- vj@verkis.is