INNKAUP OG SAMNINGAGERÐ
Verkís hefur séð um innkaup og samningagerð fyrir hönd verkkaupa eða í samvinnu við verkkaupa í fjölmörgum verkefnum.
Oftast er um samningagerð varðandi hönnun, byggingu eða viðhald mannvirkis að ræða, en einnig innkaup á tækjum og búnaði.
Stór hluti innkaupaferlisins felst í gerð útboðsgagna sem skipta má í tvo grunnþætti; tæknileg útboðsgögn og viðskiptaskilmála.
Verkís leggur eftir atvikum til sérfræðinga sem reka innkaupaferlið fyrir verkkaupa, allt frá því að setja saman útboðspakkann, greina og forvelja birgja / bjóðendur, auglýsa útboðið, taka á móti tilboðum, opna og meta tilboðin, ganga frá samningum, skipuleggja flutninga og reka birgðastöð á framkvæmdastað, til þess að annast rekstur verksamninga, breytingastjórnun og verklok.
Þjónusta
|
Verkefni |