Fréttir
Fréttir: maí 2019
Fyrirsagnalisti

Vígsla varmadælustöðvar í Vestmannaeyjum
Varmadælustöðin í Vestmannaeyjum var vígð við hátíðlega athöfn í dag. Verkís var ráðgjafi HS Veitna við verkið frá upphafi og annaðist meðal annars frum- og fullnaðarhönnun. Stöðin annar um 93% árlegrar varmaorku til húshitunar í Vestmannaeyjum.
nánar...
Vel sóttur hádegisfræðslufundur um hleðslu rafbíla
Um sextíu manns mættu á opinn fræðslufund Verkís í hádeginu í dag og tvö hundruð manns horfðu á beina útsendingu frá fundinum. Við þökkum gestum fyrir komuna og erum ánægð og þakklát fyrir mikinn áhuga.
nánar...
Verkís tekur þátt í samstarfsvettvangi um loftslagsmál og grænar lausnir
Samkomulag um samstarfsvettvang stjórnvalda og stórra aðila úr atvinnulífinu um loftlagsmál og grænar lausnir var undirritað í Ráðherrabústaðnum við Tjarnargötu í dag. Verkís er einn af stofnaðilunum.
nánar...
Vel gengur að endurheimta votlendi í Úlfarsárdal
Fyrsta áfanga í endurheimt votlendis á 87 hektara svæði í Úlfarsárdal í þeim tilgangi að binda kolefni í jörðu er lokið.
nánar...
Verkís með erindi á Fagþingi Samorku
Fagþing rafmagns 2019 fer fram á Park Inn hótelinu í Reykjanesbæ dagana 22.-24. maí nk. Þar koma fyrirtæki sem sinna framleiðslu, flutningi, dreifingu og sölu á rafmagni saman og ræða það sem er efst á baugi.
nánar...
Verkís leitar að öflugum liðsmanni á Austurlandi
Verkís óskar eftir að ráða byggingarverkfræðing eða byggingartæknifræðing í starfsstöð fyrirtækisins á Austurlandi.
nánar...Verkís stendur fyrir kynningarfundi um gróðurelda
Verkís stendur fyrir kynningarfundi um gróðurelda, varnir og viðbrögð fimmtudaginn 23. maí nk. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur ókeypis en fulltrúar stéttarfélaga eru sérstaklega hvattir til að mæta, sem og eigendur sumarhúsa.
nánar...
Mikill áhugi á öruggri hleðslu
Þórður Þorsteinsson, rafmagnstæknifræðingur á Byggingarsviði Verkís, flutti erindið Kominn tími til að tengja rétt á fræðslufundi Orku náttúrunnar.
nánar...
Hlöðum rafbílinn rétt - Hádegisfræðslufundur Verkís
Miðvikudaginn 29. maí nk. stendur Verkís fyrir opnum hádegisfræðslufundi fyrir heimili og húsfélög um hleðslu rafbíla. Á fundinum, sem ber yfirskriftina Hlöðum rafbílinn rétt, munu sérfræðingar okkar og gestafyrirlesari fræða og svara spurningum um málefnið.
nánar...
Fjögur holl húsráð
Við hjá Verkís lítum á það sem okkar þjóðfélagslegu ábyrgð að taka forystu í málum sem tengjast óþægindum íbúa innandyra, svo sem myglu.
nánar...
Verkís skilar skýrslu vegna Global Compact í fyrsta skipti
Í dag skilaði Verkís í fyrsta skipti samfélagsskýrslu vegna sáttmála SÞ um samfélagsábyrgð (e. UN Global Compact). Samhliða skilunum höfum við opnað nýja undirsíðu á heimasíðu Verkís þar sem er að finna ýmsa tölfræði sem lýsir samfélagslegri ábyrgð Verkís.
nánar...
Verkís hannar fjölnota íþróttahús á Selfossi
Verkís mun sjá um alla verkfræðilega hönnun ásamt hönnunar- og verkefnastjórn á fjölnota íþróttahúsi á lóð UMFS á Selfossi. Verkefnið er unnið í nánu samstarfi við Alark arkitekta ehf. og sveitarfélagið Árborg.
nánar...
Skóflustunga tekin að byggingu fjölnota íþróttahúss í Garðabæ
Fyrsta skóflustungan var tekin að byggingu fjölnota íþróttahúss í Vetrarmýri, í landi Vífilsstaða, í Garðabæ á föstudag. Verkís sér um alla verkfræðihönnun vegna hússins.
nánar...
Vinna við nýja aðveitu frá Hjalteyri
Á árunum 2002-2003 hóf Norðurorka tilraunaboranir eftir heitu vatni á Hjalteyri, 20 km norðan Akureyrar. Boranir gáfu góða raun og var strax ráðist í lagningu aðveitulagnar til Akureyrar. Stækkun bæjarins hefur verið ör og nú er unnið að nýrri aðveitu frá Hjalteyri til styrkingar hitaveitukerfinu.
nánar...