30/03/2020

Reisa þjónustuíbúðir fyrir fólk með fötlun í Ólafsvík

Þjónustuíbúðir Ólafsvík
Þjónustuíbúðir Ólafsvík

Unnið er að því að reisa þjónustuíbúðir við Ólafsbraut í Ólafsvík sem ætlaðar eru fólki með fötlun á Snæfellsnesi. Um er að ræða byggingu á einni hæð með fimm íbúðum. Útibú Verkís á Vesturlandi annast byggingarstjórn verksins og eftirlit með því.

Íbúðakjarninn verður 440 m² og mun rísa þar sem nú eru lóðirnar Ólafsbraut 62 og 64. Þann 10. mars sl. var hafist handa við að rífa eldri mannvirki sem stóðu á lóðunum til að rýma fyrir nýja húsinu. Gert er ráð fyrir að því verki ljúki í fyrri hluta næsta mánaðar. Það er félags- og skólaþjónusta Snæfellinga sem stendur að framkvæmdinni. Meðal annars hefur verið fjallað um verkefnið í Skessuhorni.

Í íbúðakjarnanum verða fimm einstaklingsíbúðir með sérinngangi ásamt starfsmannaaðstöðu. Íbúðirnar verða tveggja herbergja, á bilinu 54 til 56 fermetrar að stærð og standa saman af alrými með eldhúskróki og stofu, svefnherbergi, rúmgóðu baði, geymslu og þvottarými.

Einn aðalinngangur er inn í bygginguna en þar undir þaki er nokkurs konar „innigata“. Frá henni er gengið inn í hverja íbúð fyrir sig. Útgengt er á veröld við hverja íbúð. Starfsmannarými er í húsinu og hugmyndin er sú að íbúar geti leitað til starfsfólks án þess að fara undir bert loft.

Staðsetning hússins var valin með það fyrir augun að stutt sé í alla helstu þjónustu, ekki síst Smiðjuna, sem er dagþjónusta og vinnustofa fyrir fólk með skerta starfsgetu. Það er teiknistofan AVH á Akureyri sem hannar húsið. Félags- og skólaþjónusta Snæfellinga vinnur nú að undirbúa gögn til að bjóða út byggingarframkvæmdina sjálfa.

Þjónustuíbúðir Ólafsvík
Þjónustuíbúðir Ólafsvík