Metangasverksmiðja í Bergen
Bergen, Noregur
Verkís sá um hönnun á burðarkerfi bygginga, lagna- og loftræsikerfum, raflagnakerfum, brunahönnun og hljóðhönnun. Verkefnið er unnið samkvæmt BIM aðferðafræðinni.
Stærðir: 42 þúsund tonn af seyru, grunnfletir 1.200 m2 og 600 m2 |
Verktími: 2013 - 2016 |
Almennt um verkefnið:
Í metangasverksmiðjan í Bergen í Noregi, Bergen biogassanlegg, er framleitt metangas sem notað er sem eldsneyti fyrir strætisvagna í sveitarfélaginu. Verksmiðjan safnar seyru frá skólphreinsistöðvum í sveitarfélaginu og framleiðir metanið úr henni. Seyra eru þau óhreinindi sem skilin eru frá fráveituvatni með botnfellingu, síu- eða ristarúrgangs, þ.e. eftir að forhreinsun hefur átt sér stað. Reiknað er með að um 42 þúsund tonn af votri seyru fari um verksmiðjuna á hverju ári.
Verksmiðjan er einnig með móttöku fyrir úrgang úr rotþróm, matarúrgang frá veitingastöðum og hótelum, fitu úr fituskilju og afísunarvökva frá Flesland flugvelli í næsta nágrenni. Þegar verksmiðjan er á fullum afköstum getur hún framleitt metangas sem dugar til að keyra 80 strætisvagna.
Um er að ræða tvær byggingar, önnur er 1.200 m2 að grunnfleti á fjórum hæðum, hin er um 600 m2 að grunnfleti á tveimur hæðum. Byggingarnar tvær eru tengdar saman með lagnagöngum, sem einnig eru tengd við tanka á verksmiðjusvæðinu. Einnig eru þar tveir rotnunartankar sem eru 16 m í þvermál og um 20 m á hæð, ásamt fleiri minni tönkum.
Verkfræðistofan Lota var undirverktaki í þessu verkefni. Sænska
fyrirtækið Purac, sá um hönnun á vinnsluferlum og uppsetningu á tækjabúnaði
þeim tengdum.
Verksmiðjan var vígð 21. október 2016.