Alvotech hátæknisetur
Sæmundargata 15-19, Reykjavík
Verkís annast hönnun á stjórnkerfum fyrir hússtjórnarkerfi og 400 dreifikerfum fyrir framleiðslu og hjálparkerfi ásamt gangsetningum og prófunum á þessum kerfum.
Stærðir: 13.000 m2 |
Verktími: 2014-2016 |
Almennt um verkefnið:
Árið 2013 hófst bygging hátækniseturs sem sinnir þróun og framleiðslu líftæknilyfja hjá systurfélagi Alvogen á Íslandi, Alvotech. Byggingin mun hýsa framleiðslu, rannsóknarstofur og skrifstofur.
Hússtjórnarkerfið samanstendur af 5 iðntölvum (Siemens S7-1200 og S7-1500) með um alls 1.000 inn- og útgöngum. Skjákerfið Siemens WinCC er með um 4.000 merki og 40 skjámyndum.
Alvogen er alþjóðlegt lyfjafyrirtæki sem sérhæfir sig í þróun og framleiðslu samheitalyfja, lausasölulyfja og líftæknilyfja. Innan setursins verða þróuð hágæða líftæknilyf sem eru mikilvæg til meðhöndlunar á ýmsum algengum og erfiðum sjúkdómum eins og gigt, öðrum sjálfsónæmissjúkdómum og krabbameini.