Verðmæt kerfi
Verðmæti sem fara í súginn ef stjórnkerfi á þessum sviðum stöðvast eru það mikil að lögð er mikil áhersla á að uppitími sé í hámarki. Þess vegna eru þessi kerfi oftast byggð þannig að að lágmarki séu tvær fjarskiptaleiðir frá hverju tæki.
Mikilvægt er að vandað sé til hönnunar á þessum kerfum þannig að hægt sé að tengja búnað frá mismunandi framleiðendum inn á sama kerfið. Verkís hefur verið í fararbroddi í notkun nýjustu staðla í samskiptum sem gera mögulegt að tengja saman ólík tæki.
Verkís hefur á að skipa einhverjum af færustu sérfræðingum landsins í fjarskiptakerfum í orku og iðnaði, hvort sem það snýr að ljósleiðarakerfum í háspennulínum, radíóendurvörpum fyrir staranet stjórnkerfa eða þráðlausum samskiptum.
Netkerfi í virkjunum og iðnaði þurfa ávallt að vera í lagi í nútímasamfélagi. Annars geta mikil verðmæti farið í súginn.
Þjónusta
- Ljósleiðararkerfi í háspennulínum
- Radíóendurvarpar fyrir staðarnet stjórnkerfa
- Hönnun staðarneta fyrir stjórnkerfi
- Endurvarp GSM kerfa innanhús
- Þráðlaus samskipti
Verkefni
- Búðarhálsvirkjun
- Svæðisstjórnkerfi Þjórsár- og Tungnársvæði
- Reykjanesvirkjun
- Orkuver í El Salvador
- Actavis lyfjaverksmiðja – stjórnbúnaður