Verkefni

Bjarkarland

Fullbúið mun hverfið rúma um 700 íbúðir og þar verður sambyggður grunn-, leik- og tónlistarskóli með íþróttahúsi.

Nánar um verkefnið

Verkís sér m.a. um for- og verkhönnun á götum með gangstéttum, gatnamótum, þar á meðal einu hringtorgi, hönnun á leiksvæðum, grasmönum og göngustígum. Verkið felur einnig í sér hönnun fráveitu, vatnsveitu og blágrænna ofanvatnslausna þar sem það á við, umsjón með samræmingu hönnunar og útboðsgagna veitustofnanna ásamt hönnun götulýsingar.

Þá sér Verkís einnig um hönnun bráðabirgðaaðkomuleiða og vinnusvæðamerkinga vegna áfangaskiptra verkhluta gerist þess þörf og landmælingar svæðis og úrvinnslu. Verkís annaðist einnig gerð útboðsgagna vegna framkvæmda í fyrsta áfanga og kostnaðaráætlunar fyrir útboð.  

Búið er að hanna alla áfanga verkefnisins og framkvæmdir hófust í árslok 2019. Þegar hverfið verður tilbúið verður það um 40 hektarar. Lengd gatna er samtals um 6,8 km og lengd göngu- og hjólastíga er samtals um 5,7 km.

Verkefnið í hnotskurn

Staðsetning:

Selfoss, Suðurland

Stærð:

40 hektarar

Verktími:

2018 –

 

Heimsmarkmið