Metnaður fyrir góðum verkum
Verkís á kerfisgreiningarhugbúnaðinn DigSilent Power Factory og getur tekið að sér að reikna út stilligildi varnaliða í samsettum kerfum auk þess að gera greiningu á ýmsum tilvikum sem upp kunna að koma í kerfinu.
Verkís á einnig prófunartæki frá OMICRON, sem er sérhannað fyrir prófanir á varnarbúnaði (liðavernd). Notkun prófunartækis beinist fyrst og fremst að varnarbúnaði rafala og spenna annars vegar og dreifikerfum á millispennu hins vegar. Einnig má nota prófunartækið til prófana á mælibúnaði og upplýsingar til stjórnkerfis.
Sérfræðingar okkar hafa skipað sér í fremstu röð á Íslandi þegar kemur að varnarbúnaði raforkukerfa. Við leggjum okkar metnað í að skila af okkur góðu og nákvæmu verki með þarfir verkkaupa í huga. Þannig náum ekki aðeins við árangri heldur einnig viðskiptavinir okkar. Það eru okkar kjörorð.
Við göngum inn í sérhvert verkefni með þarfir verkkaupa í huga og leggjum metnað í að skila af okkur góðu og nákvæmu verki.
Þjónusta
- Hönnunarforsendur og kerfisuppbygging
- Efnisval, útboð og innkaup
- Valvísi og innri samþætting kerfishluta
- Samþætting við aðlæg kerfi annarra
- Kerfisútreikningar til að reikna stilligildi
- Gangsetningarprófanir með prófunartæki
- Viðhalds- og eftirlitsprófanir með prófunartæki