Þjónusta

Framleiðsluferlar

Verkís býður verkfræðiþjónustu á öllum sviðum framleiðslu- og iðnaðarferla.

Sérfræðingar fyrirtækisins búa yfir þekkingu og reynslu á sviði eðlis- og efnafræði, varma- og straumfræði, varmaflutningsfræði, gerð umhverfismats, samskipti við opinbera aðila og leyfisumsóknir.

Fjölbreytt flóra verkefna

Við bjóðum þjónustu við líkanreikninga, greiningar á öryggis-, heilsu- og umhverfisþáttum (ÖHU), greiningu áhættu (Risk assessment), rekstraráhættu (Hazop), orsakagreiningar (e. root cause analysis) og CE merkingar, hönnun stjórnbúnaðar og stýrikerfa og margt fleira. Við leggjum metnað í að uppfæra þekkingu okkar stöðugt í síbreytilegum heimi. Þannig tryggjum við að viðskiptavinir fái ávallt lausnir sem eru í takt við tímann, en jafnframt hagkvæmar fyrir hvern verkkaupa.

Verkís hefur unnið að fjölbreyttum iðnaðarverkefnum á öllum sviðum álframleiðslu, kísiljárn- og kísilmálmframleiðslu, steinullar- og saltframleiðslu, þurrkun kalkþörunga, fiskeldis, fiskvinnslu og lyfjaframleiðslu svo fátt eitt sé nefnt.

Meðal verkefna sem sérfræðingar Verkís á sviðum framleiðslu- og iðnaðarferla hafa komið að eru saltverksmiðja Norðursalts, kísilverksmiðjan í Helguvík og álverið í Straumsvík.

Hvað varðar framleiðsluferla getur Verkís séð um uppsetningu og hermun á efnis- og orkujafnvægi ferla, sem er mikilvægt til að tryggja að framleiðsluferlar séu skilvirkir og öruggir. Verkís sér um uppbyggingu og skipulag, hönnun, val á búnaði og efnum. Verkís hefur reynslu af tilraunaeiningum og tilraunaverksmiðjum á sviði lífdísil, lífetanól, metangasgerð og vinnsla stórþara. Og hefur komið að ýmsum kerfismyndum og teikningu á flæði fyrir ýmis efnaferli.

Sérfræðingar okkar sækja sér sífellt nýja þekkingu svo við getum boðið upp á lausnir sem eru í takt við tímann.

Þjónusta

  • Þurrkunar- og eimingarferlar
  • Lyktareyðing og áhættugreining
  • Straumlínustjórnun / „Lean“
  • Viðhaldskerfi / „Euromaintenance“
  • Líkanaútreikningar í Simul8, kæli- og frystikerfi
  • Orsakagreining / „Root cause analysis“
  • Efnis- og orkujafnvægi
  • Forhönnun
  • Tilraunaeiningar og tilraunaverksmiðjur
  • Kerfismyndir
  • Þvottaturnar, hreinsun á gasi
  • Hvarftankar, notkun og val á efnahvötum
  • Metangasgerð
  • Ferlaþróun og fýsileikakannanir
  • Gæðastjórnun og rekstur

Verkefni

Tengiliðir

Hannibal Ólafsson
Byggingarverkfræðingur / Viðskiptastjóri
Deild: Iðnaður
ho@verkis.is

Kristján G. Sveinsson
Byggingarverkfræðingur
Deild: Iðnaður
kgs@verkis.is