Brýr og undirgöng
Verkís hefur í áratugi veitt ráðgjöf á sviði umferðarmannvirkja, við undirbúning og hönnun vega, göngu- og hjólastíga, brúa og undirganga.
Með auknu þéttbýli og endurbótum á þjóðvegum landsins hafa verkefni í flokki umferðarmannvirkja í auknum mæli náð til hönnunar mislægra gatnamóta, brúa og undirganga.
Verkís býður upp á þjónustu á sviðum sem tengjast samgöngum og umferð, þar er m.a. um að ræða umferðarathuganir og spár, athuganir á hagkvæmni valkosta í samgöngum, skipulagshönnun, frumhönnun og fullnaðarhönnun samgöngumannvirkja. Einnig býður fyrirtækið upp á ráðgjöf vegna reksturs og viðhalds slíkra mannvirkja, auk gerðar útboðsgagna og eftirlits með framkvæmdum.
Fyrirtækið státar af verkfræðingum sérhæfðum í hönnun samgöngumannvirkja með reynslu af brúarhönnun frá Íslandi, Danmörk, Svíþjóð og Noregi. Við hönnun samgöngumannvirkja er aðaláhersla lögð á að mannvirkin séu örugg notendum, hagkvæm í framkvæmd og í sátt við umhverfi sitt.
![]() |
Tengiliður: |
Þjónusta
|
Verkefni
|