19/04/2018

Ásgarðslaug tekin í notkun á ný

Ásvallarlaug
Ásvallarlaug

Ásgarðslaug í Garðabæ verður opnuð á ný við hátíðlega athöfn í dag, sumardaginn fyrsta. Miklar endurbætur hafa verið gerðar á lauginni að undanförnu. Verkís sá um hönnun, umsjón og eftirlit verksins.

Endurbæturnar fólust í hönnun, byggingu nýbygginga og endurgerð núverandi búningsklefa og sundlaugarsvæðis. Á vef Garðabæjar er fjallað um helstu breytingar sem gerðar voru.

Þar má nefna tvo nýja heita potta, nýjan kaldavatnspott, nýja vað/setlaug, barnarennibraut, tvo „nuddfossa“, nýjar útisturtur og ráspallar. Gufubaðið var endurnýjað og flísalagt og útiklefar endurnýjaðir. Sturtur voru allar endurnýjaðar og í inniklefum var byggður nýr klefi fyrir fatlaða með salerni og sturtu sem hægt er að loka af.

Verkís sá um burðarþolshönnun, hönnun frárennslis-, hreinlætis- og hitalagna, hönnun sundlaugarkerfis, hönnun loftræsikerfis, brunatæknileg hönnun, hljóðtæknileg hönnun, hönnun raflagna, undirbúningsvinnu, hönnunarstjórnun, útboð og samningsgerð, tæknilegt eftirlit og kostnaðargát.

Upphaflega var Ásgarðslaug í Garðabæ hönnuð af Manfreð Vilhjálmssyni. Laugin var vígð á sumardaginn fyrsta árið 1988, eða 21. apríl fyrir þrjátíu árum.

Ásvallarlaug
Ásvallarlaug