05/03/2021

„Hér er hugsunin ekki borð, stóll og barn“

Stapaskoli_umfjollun-MBL
Stapaskóli

Nýr skóli í Reykjanesbæ, Stapaskóli, tók til starfa síðastliðið haust. Um er að ræða stærstu framkvæmd sem sveitarfélagið hefur ráðist í. Stapaskóli er heildstæður skóli þar sem 280 grunnskólanemar frá 1.-9. bekk stunda nú nám og 69 leikskólanemendur frá 18 mánaða aldri.

Verkís sá um fullnaðarhönnun allra verkfræðiþátta og hefur lýsingarhönnun skólans, sem Verkís annaðist einnig, verið tilnefnd til Darc Awards lýsingarverðlaunanna.

Verkís hannaði lýsingu skólans í samvinnu við Arkís arkitekta. Hugmyndin með lýsingarhönnuninni fyrir Stapaskóla var að skapa sveigjanlega lýsingu fyrir nemendur og kennara, en lýsingin var einnig hönnuð til að hafa áhrif á hegðun nemenda og skapa jafnvægi milli virkra og rólegra svæða.

Einnig var lögð áherslu á að raflýsing og dagsbirta vinni vel saman. Lýsing var notuð til að leggja áherslu á arkitektúrinn, en með því að leggja áherslu á efnivið, liti og uppbyggingu með lýsingu verður arkitektúrinn sýnilegri.

Engar tússtöflur og innlögn í litlum hópum

Í viðtali við Morgunblaðið segir Gróa Alexandersdóttir, skólastjóri Stapaskóla, að í skólanum hafi starfsfólk nýtt ótal tækifæri til að fara inn í 21. öldina. Engar tússtöflur eru í skólanum, engin kennaraborð og allt umhverfi nemenda er sveigjanlegt og hreyfilegt.

„Það er ekki hugsað þannig að kennarinn standi upp við töflu og sé með fyrirlestur, heldur er kennarinn að þjónusta börnin og alltaf með innlögn í litlum hópum sem færir svo mikla nálægð. Svo geta krakkarnir valið vinnuumhverfi sitt og þess vegna nýtum við spjaldtölvur og fartölvur því við viljum að krakkarnir læri inn á sjálfa sig og að þeir finni hvað hentar þeim best. Við erum því að brjótast út úr þessu bókamiðaða námi og tengja allt námið saman. Hér er hugsunin ekki borð, stóll og barn,“ segir Gróa í samtali við Morgunblaðið.

Verkefni: Stapaskóli 

Undirbúningur nýs skóla í Dalshverfi hófst árið 2015 með skipan undirbúningshóps. Litið var til þess að skólinn yrði heildstæður, þ.e. grunnskóli, leikskóli, tónlistarskóli, frístundaskóli og félagsmiðstöð, ásamt því að þjóna grenndarsamfélaginu sem menningarmiðstöð. Undirbúningsnefnd sem skilaði skýrslu í júní 2016 horfði til þess að kröfum samtímans yrði mætt um leið og horfði væri til framtíðar. Megineinkenni áttu því að vera sveigjanleiki í kennslu, í nýtingu rýmis, í skipulagi vinnudags og skilum á milli skólastiga. Í október 2017 var efnt til nafnasamkeppni og varð nafnið Stapaskóli hlutskarpast. Í byrjun nóvember sama ár var síðan tekin fyrsta skóflustunga að nýja skólanum og í framhaldi hófust framkvæmdir. Arkís arkitektar urðu hlutskarpastir í samkeppni um hönnun Stapaskóla. Skólinn stendur miðsvæðis í nýjasta hverfi Reykjanesbæjar og eru leiðarljós hans „gleði, vinátta, samvinna og virðing“.

Opin og björt skólabygging

Starfsemi í nýja skólahúsinu hófst haustið 2020 en áður hafði skólinn verið starfræktur í bráðabirgðahúsnæði sem útibú frá Akurskóla. Nemendur í 10. bekk kusu að klára grunnskólanám sitt í Akurskóla og leikskólinn er rekinn í bráðabirgðahúsnæðinu við skólann en leikskólaálman er hluti af 3. áfanga hússins, ásamt frístundaskóla og heimilisfræðistofum. Í öðrum áfanga, sem nú er í ferli, er íþróttahús og sundlaug og í þeim fyrsta sem nú hefur verið tekinn í notkun er grunnskólaálma auk bókasafn. Þar sem Dalshverfi er ört vaxandi bæjarfélag mun skólinn geta tekið við 500 grunnskólanemum og 120 til 150 leikskólanemum. Skólabyggingin er opin og björt, þar er vítt til veggja og alls kyns skemmtileg og fjölnota rými inni í rými eða inni í vegg. Gróa segir kostina við slíkt umhverfi marga.

„Kostirnir eru að við setjum upp ákveðna stefnu og sýn og tækifærið er að við ráðum fólk inn á þeim forsendum. Þar er stærsta tækifærið. Hér er enginn kennari sem hefur gert sitt í 40 ár og á erfitt með að breyta, hér er fólk ráðið inn á þessum forsendum. Við erum teymisskóli og göngum út frá því að það séu allir í teymum, hvort sem það er starfsfólk eða nemendur. Það eru engin nemendaborð keypt inn sem eru hugsuð fyrir einn, það eru öll borð keypt inn fyrir tvo eða fleiri. Við erum líka með samþættingu námsgreina alveg frá 1. bekk og upp úr og göngum við út frá því að vinna að heildstæðum verkefnum. Hugsunin er að þegar þau fara héðan þá kunni þau að vinna í teymi og þekki sína styrkleika,“ segir Gróa.

Í skólanum er boðið upp á fjölbreytt vinnuumhverfi fyrir nemendur, þannig að þeir geta valið hvernig þeir sitja, standa eða liggja. Húsgögnin eru því mismunandi og aðstæður mismunandi fyrir krakkana. Segir Gróa að nemendum finnist mjög gott að geta valið sér pláss, því sumir vilja vera á grjónapúða og einhverjir uppi í glugga svo dæmi séu tekin. Nemendum býðst einnig að fara út úr skólastofunni inn í lesrými og vinnubása og jafnvel skella sér á klifurvegginn ef þeir þurfa að losa orku. Reynslan er góð, að sögn Gróu, enda var hugað vel að hljóðvist og fleiri þáttum við byggingu skólans. „Við trúum því að ef við aukum vellíðan nemenda auki það námsáhuga og námsárangur,“ segir Gróa.

Heimsmarkmið

Stapaskoli_umfjollun-MBL
Stapaskóli