18/05/2018

Hreinsistöð Veitna á Akranesi tekin í notkun

Dælustöð á Akranesi
Dælustöð á Akranesi

Ný hreinsistöð Veitna á Akranesi var formlega tekin í notkun á miðvikudag. Vinna við verkið hófst árið 2006 en hlé var gert á því árið 2010. Frá því að verkinu var haldið áfram í byrjun árs 2015 hefur hönnun og eftirlit verið í höndum Verkís.

Með hreinsistöðinni er nú stigið stórt skref í umhverfismálum Akurnesinga. Fyrir uppbyggingumfráveitunnar rann óhreinsað skólp út um átta meginrásir, nálægt fjöruborði. Nú er skólpi veitt frá þessum útrásum og í hreinsistöð.

Uppbygging kerfisins fól í sér, auk hreinsistöðvarinnar, uppsetningu á sex nýjum dælustöðvum  og dælubrunnum sem dæla skólpinu frá gömlu útrásunum í átt að hreinsistöðinni, nokkrum kílómetrum af nýjum lögnum á landi auk 1,5 km sjólögn frá hreinsistöðinni. Stöðin hreinsar öll gróf efni úr skólpinu auk þess að sía frá sand og fitu. Hreinsuðu skólpinu er því næst dælt um hálfan annan kílómetra út í sjó.

Hönnun mannvirkisins hófst árið 2006 og var smíði þess boðin út í áföngum 2007 og 2008. Árin 2008 – 2010 voru mannvirkin byggð, dælubrunnar settir niður og megnið af lagnavinnu klárað. Erfið fjárhagsstaða Orkuveitu Reykjavíkur í kjölfar hrunsins varð til þess að frekari nýframkvæmdum var frestað. Þráðurinn var tekinn upp aftur árið 2015 þegar lögð var lögn í sjó, lagnavinna var kláruð og uppsetning vélbúnaðar hófst.

Verkís hefur frá upphafi verið aðalráðgjafi Orkuveitu Reykjavíkur/Veitna vegna framkvæmdanna.

Verkís óska Veitum og notendum til hamingju með áfangann.

Dælustöð á Akranesi
Dælustöð á Akranesi