04/11/2021

Neyðarkallinn

Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, ásamt okkar björgunarsveitafólki; Skúli Pálsson, Kári Steinar Karlsson og Auður Atladóttir.

Verkís styrkir Landsbjörg með kaupum á Neyðarkallinum.

Verkís er stolt af því að hafa innan sinna raða starfsfólk sem vinnur óeigingjarnt starf í þágu björgunarsveita á Íslandi.

Í dag selur starfsfólk Verkís, sem er í björgunarsveitum Landsbjargar, neyðarkallinn innan fyrirtækisins.

Samhliða sölunni kaupir Verkís, líkt og undanfarin ár, stóra Neyðarkallinn ásamt því að leggja málefninu lið með fjárframlagi.

Salan á neyðarkallinum er ein stærsta fjáröflun Landsbjargar og í ár stendur salan yfir um allt land dagana 4. nóvember til og með 7. nóvember.

Sjá nánar: landsbjorg.is

Heimsmarkmið

Egill Viðarsson, framkvæmdastjóri Verkís, ásamt okkar björgunarsveitafólki; Skúli Pálsson, Kári Steinar Karlsson og Auður Atladóttir.