15/03/2018

Sundhöllin Holmen valin Bygging ársins 2017 í Noregi

Holmen sundhöll bygging ársins 2017
Holmen sundhöll bygging ársins 2017

Sundhöllin Holmen í Asker í Noregi var í gær valin Bygging ársins 2017 af Samtökum atvinnulífsins í Noregi (NHO).

Sundhöllin er hönnuð af Verkís og Arkís arkitektum. Verkís er heildarráðgjafi verkefnisins en Arkís arkitektar hafa séð um alla arkitektahönnun. Verkefninu var stýrt af OP-Verkis í Osló.

Sundhöllin var opnuð síðastliðið sumar og hefur vakið mikla athygli. Mikill metnaður var lagður í verkefnið af hálfu Asker sem er byggjandi að þessu verkefni. Lagði bærinn til eina af eftirsóknarverðustu lóðunum við ströndina sem enn var til umráða og nýtur sundhöllin nálægðar við ströndina í beinum tengslum við Osló fjörðinn.

Sundhöllin er ein orkuhagkvæmasta sundhöll Noregs. Hátt í helmingur orkunnar sem notuð er við rekstur sundhallarinnar er aflað á lóð hennar. Til þess eru notaðar varmadælur sem sækja orku úr 15 um 220 m djúpum borholum á lóðinni, sólarrafhlöður og sólarfangarar. Sundhöllin var valin eitt af svokölluðum fimmtíu fyrirmyndarverkefnum FutureBuilt í Noregi. Verkefnin eiga að minnka losun gróðurhúsalofttegunda um 50% innan sviða umferðar-, orku- og efnisnotkunar.

Arkitektúr hússins byggir á þeim væntingum sem til hans voru gerðar. Þak hússins er til dæmis aðgengilegt og formað sem hallandi grasflötur mót suðri og fangar fallegt útsýni fjarðarins. Auk arkitektahönnunar sáu Arkís um landslagshönnun og önnuðust umsjón með löggiltum byggingarleyfum. Arkitektúr hússins hefur þegar hlotið mikið lof og umtal í Noregi.

Verkís annaðist verkefnastjórn, gerð kostnaðaráætlana, hönnun allra verkfræðilegra þátta, hönnun gatnakerfis, jarðtækni, gerð útboðsgagna, ráðgjöf á framkvæmdartíma og gerð rekstrarhandbókar.

Holmen sundhöll bygging ársins 2017
Holmen sundhöll bygging ársins 2017