25/05/2018

Verkís í þriðja sæti í Hjólað í vinnuna

Hjólað í vinnuna viðurkenning 2018.
Hjólað í vinnuna viðurkenning 2018.Frá vinstri: Ólafur Ívar Baldvinsson, Elín Vignisdóttir, Linda María Ólafsdóttir og Einar Sverrir Óskarsson.

Í ár endaði Verkís í þriðja sæti í keppninni Hjólað í vinnuna. Verðlaunin voru afhent í Fjölskyldu- og húsdýragarðinum í dag.

Verkís keppti í flokki fyrirtækja með 130 – 399 starfsmenn en þar voru 48 vinnustaðir skráðir til leiks. Hér má sjá lista yfir fyrirtækin sem voru í þremur efstu sætunum.

1. Nova
2. Hafrannsóknastofnun
3. Verkís

Á lóð Verkís við Ofanleiti 2 í Reykjavík er að finna glæsilegt hjólaskýli sem er mikið notað af starfsfólki. Þar er hægt að geyma hjólið á öruggum stað og þar er einnig að finna búnað til að sinna helstu viðgerðum og viðhaldi á hjólinu.

Verkís mun taka virkan þátt í WOW Cyclothon í ár líkt og síðustu ár og mikill hugur í keppendum.

Hjólað í vinnuna viðurkenning 2018.
Hjólað í vinnuna viðurkenning 2018.Frá vinstri: Ólafur Ívar Baldvinsson, Elín Vignisdóttir, Linda María Ólafsdóttir og Einar Sverrir Óskarsson.